** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og bjart 224,8 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað við Súluhöfða 13 rétt við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Stórar timburverandir með heitum potti. Stórt steypt bílalstæði. Eignin er skráð 224,8 m2, þar af einbýli 166,5 m2 og bílskúr 58,3 m2.
Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, þvottaaðstöðu, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.
Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöllinn, Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, Lágafellslaug og World Class.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er björt með fatahengi og flísum á gólfi. Stórir gluggar og þakgluggi gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á verönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt, með vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Stofan er rúmgóð með flísum á gólfi og mikilli lofthæð. Þakgluggi er í stofu sem gefur skemmtilega birtu inn í rýmið.
Eldhús og borðstofa er í björtu opnu rými með flísum á gólfi. Í eldhúsi er hvít innrétting með eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn og helluborð. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Úr rýminu er útgengt út á timburverönd.
Þvottaaðstaða er í innbyggðum skáp við eldhúsið. Vaskur og innrétting, þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi, rafmagns bílskúrshurðaropnara. Rennandi vatn, hiti og rafmagn. Búið er að setja upp salerni innst í bílskúr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 170.100.000 kr
Verð. kr. 177.500.000,-