Fasteignaleitin
Skráð 21. júlí 2025
Deila eign
Deila

Lambamýri 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
105.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
934.783 kr./m2
Fasteignamat
77.900.000 kr.
Brunabótamat
79.230.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527712
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 105,8 fermetra 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með 25,0 fermetra þaksvölum á frábærum útsýnisstað í nýju og vönduðu fjölbýlishúsi við Lambamýri auk sér bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu og sérmerkts bílastæðis á lóð hússins.
Eignin stendur beint á móti leikskóla, skóla, sundlaug og íþróttasvæði.

Aukin lofthæð er í íbúðinni, stórir gluggar sem gera íbúðina mjög bjarta og auka enn frekar á fallegt útsýni, allar innréttingar ná upp í loft og loftskiptikerfi er í húsinu.

Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 87.800.000.-

Lýsing eignar:

Forstofa, rúmgóð, flísalögð og bæði með fataskápum og fatahengi.
Barnaherbergi I, innaf forstofu er parketlagt og með fataskápum.
Hol, parketlagt.
Stofa, parketlögð og björt með stórum gluggum og frábæru útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli, Esju og víðar.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt, rúmgott og bjart og með stórri borðaðstöðu. Mjög fallegar hnotu- og hvítar innréttingar með innbyggðum ísskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél. Stór borðaðstaða er í eldhúsi, stórir gluggar og frábært útsýni.
Þaksvalir, sem útgengi er á úr eldhúsi eru 24,7 fermetrar að stærð og frá þeim nýtur virkilega fallegs útsýnis.
Svefngangur, parketlagður.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt og með fataskápum. Frá herbergi er virkilega fallegt útsýni út á sjóinn og víðar.
Þvottaherbergi, flísalagt og með lítilli innréttingu.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi II, parketlagt og með fataskápum.

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í bílageymslu, merkt nr. 19, og búið að setja upp grunn fyrir rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, 7,6 fermetrar að stærð og merkt nr. 13.
Sameiginleg hjólageymsla, með glugga, mjög rúmgóð og bæði innangengt í hana úr bílageymslu og af sameignargangi.

Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið.

Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum stéttum, tyrfðum flötum og leiktækjum fyrir börn. Stórt malbikað bílaplan er við húsið með fjölda bílastæða, ýmist sérmerktum eður ei.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð við hlið sundlaugarinnar, stutt er í leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.  Til stendur að opna matvöruverslun í þarnæsta húsi og einnig á að setja upp veitingastað í því sama húsi.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/07/202472.300.000 kr.94.115.000 kr.105.8 m2889.555 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2527712
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
9
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.780.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambamýri 1
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 1
Lambamýri 1
225 Garðabær
116.1 m2
Fjölbýlishús
412
860 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 4
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 4
Lambamýri 4
225 Garðabær
123.5 m2
Fjölbýlishús
312
809 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 3
Bílastæði
Skoða eignina Maríugata 3
Maríugata 3
210 Garðabær
98.7 m2
Fjölbýlishús
413
982 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 3
Bílastæði
Skoða eignina Maríugata 3
Maríugata 3
210 Garðabær
98.5 m2
Fjölbýlishús
412
984 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin