BJÖRT 2JA HERBERGJA, VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ AÐ SANDBAKKAVEGI 4, HÖFN Í HORNAFIRÐI.
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Snorri Snorrason lgf, sími:895-2115, kynna: Mjög vel skipulögð 52,7 fm 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi að Sandbakkavegi 2-4, sem samanstendur af tveimur stigagöngum með samtals 12 íbúðum. Húsið var byggt árið 1991. Þakjárn hefur verið endurnýjað svo og gluggar í öllu fjöleignahúsinu. Gengið er inn um sameiginlegan inngang sem er dúkalagður sem og stigagangur hússins.
FORSTOFA, flísar á gólfi og fatahengi. MIÐRÝMI og STOFA, parket á gólfi, útgangur út á suðvestur svalir.
ELDHÚS, parket á gólfi, upprunanleg innrétting, eldavél og vifta.
HJÓNAHERBERGI, parket á gólfi og skápar.
BAÐHERBERGI, flísar á gólfi og hluta af veggjum, hvít hreinlætistæki, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél, og innrétting.
GEYMSLA, sér í íbúð, góðar hillur og lakkað gólf. Hlutfallstala fyrir sameign matshlutans, 11,61%. Hlutfallstala fyrir matshluta 01 og 02 (hús og lóð), 5,81%. Hlutfallstala fyrir upphitun, 11,35%.
HJÓLAGEYMSLA, er í sameign með sér inngangi.
SAMEIGN: Forstofa, flísar á gólfi. Stigagangur, dúkur á gólfum og þrepum
Viðhald og endurnýjun:
Endurnýjaðar neysluvatnslagnir 2022
Gluggar og gler í öllu fjöleignahúsinu. 2022
Þakjárn og þakpappi endurnýjað á öllu fjöleignahúsinu 2023
Allar nánari upplýsingar og milligöngum um skoðun veitir: Snorri Snorrason löggiltur fasteignasali í síma 8952115 eða á netfanginu snorri@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.