Fasteignaleitin
Skráð 10. okt. 2025

Ásbúð 15

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
199.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
164.900.000 kr.
Fermetraverð
827.396 kr./m2
Fasteignamat
141.250.000 kr.
Brunabótamat
90.500.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2069132
Landnúmer
117976
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað/talið í lagi
Raflagnir
Endurnýjað að hluta en nýleg rafmagnstafla
Frárennslislagnir
Ekki vitað/talið í lagi
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd fyrir framan og aftan hús
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti að hluta
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einbýlishús á einni hæð skráð 199,3 fm. með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Garðabænum. Íbúðarými er 157,0 fm. og skiptist í forstofu, glæsilega arinstofu/setustofu, opið hol, eldhús, borðstofu og stofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi (þar af eitt innaf bílskúr), baðherbergi með saunu og þvottahús.  Bílskúr er skráður 42,3 fm. með auka rými fyrir innan.  

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali gudrunlilja@remax.is / 867-1231

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR


Um er að ræða einstaklega fallegt og hlýlegt einbýlishús á einni hæð í Garðabæ sem hefur verið töluvert endurnýjað síðustu ár. Húsið er með mjög skemmtilegan karakter og góða „heimilisstemningu“ - sérstaklega arinstofan sem er há til lofts með fallegum hlaðnum arni og tengingu út í garð. Eignin stendur á stórri og gróinni lóð með skjólsælum veröndum til suðurs og norðurs, sem skapar mjög notalegt útivistarrými. Inni er opið og bjart skipulag, fjögur svefnherbergi og baðherbergi með sánu sem gefur ákveðinn lúxus og vellíðunarblæ. Góð staðsetning, stutt er í skóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu.

Nánari lýsing:
Forstofa
er falleg og björt, flísalögð og með góðum fataskápum. Hiti er í gólfum.  Aukin lofthæð í rými og gengið þaðan í arinstofu og innangengt í bílskúr.
Arinstofan er mjög glæsileg, björt og há til lofts. Flísar eru á gólfum með gólfhita. Fallegur hlaðinn arinn sem gefur góðan hita í rýmið. Úr arinstofu er útgengt út á ca. 20,0 fm. viðarverönd og bakgarð til norðurs
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með góðu skápaplássi. Helluborð og vifta, bökunarofn og uppþvottavél í vinnuhæð. Parket á gólfum. Stór og bjartur gluggi hleypir fallegri birtu inn.
Borðstofa og stofa er í björtu og opnu rými með útgengt út á ca. 50 fm. viðarverönd til suðurs. Veröndin er einstaklega skjólsæl og sólar nýtur vel yfir daginn og fram á kvöld.
Svefnherbergin eru fjögur. Í íbúðarhluta hússins eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, parket á gólfum. Fataskápar eru í hjónaherbergi en milli barnaherbergja er fataherbergi, innangengt frá báðum herbergjum.  Að auki er fjórða svefnherbergið staðsett inn af bílskúr.
Baðherbergi er með vaskinnréttingu með góðu skápaplássi, upphengdu salerni og hornbaðkari með sturtu. Flísalagt er í hólf og gólf, jafnframt er góður opnanlegur gluggi. Inn af baðherbergi er viðarklædd sána með opnanlegum glugga.
Þvottahús er með hvítri vaskinnréttingu, flísar á gólfi.
Bílskúr er skráður 42,3 fm. að stærð. Fullbúinn með hita og rafmagni, rafmagnshurðaopnara og geymslulofti. Inn af bílskúr er opið rými (léttir milliveggir) með parketlögðu svefnherbergi fyrir innan. Bjart og rúmgott svefnherbergi með fallegu útsýni til norðurs.
Garðurinn er einstakur með fallegum og fjölbreyttum gróðri. Stærð lóðar alls er 972,0 fm.  Falleg aðkoma er að húsinu, hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Framkvæmdir og viðhald síðustu ára:
2025: Gluggar yfirfarnir og gler endurnýjað með sprossum á milli (fyrir utan bílskúr og arinstofu).  Nýtt þakskyggni og nýjar þakrennur. Sett ný útiljós með tímastillingu. Ný rafmagnstafla, tenglar og rofar endurnýjaðir að hluta.  Ný hitaveitugrind með gólfhitastýringu í forstofu, arinstofu og baðherbergi ásamt thermostati.
2023: Ný viðarverönd rúmlega 50 fm. smíðuð fyrir framan hús.
2022: Sett upp þriggja fasa Zaptec hleðslustöð á húsvegg við bílaplan.
2019: Húsið málað að utan.
2008: Framkvæmdir og endurbætur á viðbyggingu, ytra og innra byrði lagað. Ný gólfefni (flísar) og settur gólfhiti. Gluggar og gler endurnýjað. Þak endurnýjað á viðbyggingu og bílskúr
2005: Eldhús endurnýjað af fyrri eigendum.
2001: Baðherbergi endurnýjað af fyrri eigendum.
1983: Viðbygging/garðskáli byggður milli húss og bílskúrs.

Einstaklega fallegt og sjarmerandi timburhús á eftirsóttum stað í Garðabænum. Allar upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/06/201861.050.000 kr.75.000.000 kr.199.3 m2376.317 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1973
42.3 m2
Fasteignanúmer
2069132
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.600.000 kr.

Myndir (63)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtagata 5
Bílskúr
Skoða eignina Holtagata 5
Holtagata 5
730 Reyðarfjörður
256.9 m2
Einbýlishús
915
226 þ.kr./m2
58.000.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 1
Bílastæði
Skoða eignina Maríugata 1
Maríugata 1
210 Garðabær
103.4 m2
Fjölbýlishús
413
947 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvangur 46
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:12. apríl kl 14:00-14:30
Skoða eignina Vesturvangur 46
Vesturvangur 46
220 Hafnarfjörður
197 m2
Einbýlishús
725
837 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hvannarimi 24
Skoða eignina Hvannarimi 24
Hvannarimi 24
112 Reykjavík
177.8 m2
Fjölbýlishús
624
787 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin