RE/MAX og Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna einstaklega fallegt og vel staðsett 220,2 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Hraunbrún 13 í Hafnarfirði.
Eignin telur alls 6 herbergi og býður upp á þann möguleika að útbúa aukaíbúð á jarðhæð með sérinngangi. Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign á rólegum og grónum stað, í göngufæri við skóla, leikskóla, sundlaug, fallegt útivistarsvæði og miðbæinn. Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.*** SMELLTU HÉR og skoðaðu eignina í 3-D, þrívíðu umhverfi.***Aðkoma og lóðAðkoma að húsinu er afar snyrtileg. Steypt innkeyrsla með snjóbræðslu og tveggja stæða bílaplani. Rafdrifin snjóhitabræðsla er í hluta stéttar og tröppum. Steyptar tröppur með fallegu handriði að aðalinngangi, að hluta er handrið klætt með kopar. Lóðin er gróin og falleg, með viðarpalli að framan með skjólgirðingu og nýlegum yfirbyggðum palli að hluta á baklóð.
Efri hæð,björt og opinKomið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Gestasnyrting er nýleg og snyrtileg.
Miðrými hússins er einstaklega rúmgott og bjart með mikilli lofthæð, gegnheilu niðurlímdu beikiparketi og sérsmíðuðum viðarpanelum sem setja hlýlegan og vandaðan svip á eignina.
Eldhús er með fallegri upprunalegri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi, ofni í vinnuhæð og helluborði. Bjartur borðkrókur og stórir gluggar. Inn af eldhúsi er gott búr með hillum.
Stofa og borðstofa eru í fallegu opnu rými með aukinni lofthæð og stórum gluggum sem snúa að garði. Útsýni er fallegt í átt að Víðistaðakirkja og nærumhverfi.
Sjónvarpsrúmi er rúmgott með útgengi út á svalir sem ná meðfram framhlið hússins.
Á hæðinni eru fjögur svefnherbergi: rúmgott hjónaherbergi með fataskáp og þrjú barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með ljósri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og baðkari/sturtu (nýlegt).
Nýlegt og vel útbúið þvottahús með góðum hirslum og vinnuaðstöðu. Þaðan er útgengt út í garð, nýlegur pallur.
Hringstigi tengir hæðirnar saman og auðvelt er að loka á milli og nýta jarðhæð sem séríbúð.
Jarðhæð, möguleg aukaíbúðJarðhæð hefur bæði sérinngang frá innkeyrslu og innangengt frá efri hæð.
Hún skiptist í flísalagt anddyri, alrými með eldhúsaðstöðu, tvö rúmgóð svefnherbergi(annað inn af bílskúr) og baðherbergi (á teikningu skráð sem geymsla) með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hentar vel sem útleigueining, unglingaaðstaða eða fyrir stórfjölskyldu.
Bílskúr og geymslurMjög rúmgóður bílskúr með hurðaopnara, 3ja fasa rafmagni og heitu og köldu vatni. Innangengt er í bílskúr frá jarðhæð.
Auk þess eru kaldar geymslur undir útistiga og á hlið húss, ásamt litlum skúr á lóð (ekki inn í fermetratölu).
Samantekt
Hér er um að ræða einstaklega vandað og fallega fjölskyldueign á eftirsóttum stað í grónu hverfi í Hafnarfirði.
Möguleiki á aukaíbúð, góð aðkoma, falleg lóð og stutt í alla helstu þjónustu gera þessa eign afar áhugaverða.
- Þakjárn var endurnýjað fyrir um 10 árum.
- Sett nýtt blöndunartæki og baðkar fyrir 2 árum.
- Nýlega standsett gestasnyrting.
ATHUGA - FASTEIGNASALI ER TENGDUR SELJANDUM FJÖLSKYLDUBÖNDUM.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali
Sími 820-0490
Netfang: gudrun@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.