Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna: ***ENDARAÐHÚS - SÉRINNGANGUR*** Tveggja herbergja, 61,9m2, endaraðhús með sérinngangi á þessum eftirsótta stað í Mosfellsbæ. Um er að ræða Grundartanga 42 sem skiptist svo: Anddyri, gangur, svefnherbergi, baðherbergi, stofa, eldhús og geymsla sem er innan íbúðar. Plastparket og flísar eru á gólfi. Húsinu fylgir tvö bílastæði. Örstutt er í alla helstu þjónustu og má þar nefna sem dæmi; skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, golfvöll og matvöruverslanir auk góðra og fallegra gönguleiða.
Bókaðu skoðun hjá Svavar Friðrikssyni, lgfs, í síma 623-1717 eða sendu tölvupóst á svavar@fstorg.is.
Nánari lýsing eignar.
Inngangur. Sérinngangur.
Anddyri: Flísalagt gólf. Fatahengi og aðgengi að rafmagnstöflu.
Eldhús: Opið við stofu, snyrtileg - hvít innrétting með góðu skápaplássi. Helluborð, loftgleypir, bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi fyrir ofan vask. Eldhúsgólfið er með flísum.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt út á verönd sem snýr í suður.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi ásamt fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt gólf. Baðkar, salerni og innrétting með vaski. Tengi og aðstaða fyrir þvottavélar inni á baðherbergi.
Geymsla: Geymsla er innan íbúðar.
Bílastæði. Tvö bílastæði fylgir með íbúðinni.
Um er að ræða steypt og vel byggt endaraðhús á þessum friðsæla og eftirsótta stað í Mosfellsbæ. Örstutt er í alla helstu þjónustu og má þar nefna sem dæmi; skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, golfvöll og matvöruverslanir auk góðra og fallegra gönguleiða.
Bókaðu skoðun hjá Svavar Friðrikssyni, lgfs, í síma 623-1717 eða sendu tölvupóst á svavar@fstorg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.