Helgafell fasteignasala kynnir til sölu fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð við Arnarsmára 18 í Kópavogi.Vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi. Um er að ræða 100,2 fermetra eign sem skiptist í 94,5 fermetra íbúðarrými og 5,7 fermetra geymslu í sameign. Íbúðin samanstendur af forstofu, þremur góðum svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, borðstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Skjólgóðar svalir til suðvesturs.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 100,2 fm | Fasteignamat 2025 er kr. 71.600.000,-
Nánari lýsing:Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Barnaherbergi 1: Eikarparket á gólfi og gluggi til norðurs og fataskápur.
Barnaherbergi 2: Eikarparket á gólfi og gluggi til norðurs og fataskápur.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting og gott skápapláss.
Steinn á borðplötu og niðurfelldur vaskur. Tengi fyrir uppþvottavél. Eldhúsið er opið í tvær áttir. Eikarparket á gólfi. Góður borðkrókur við enda eldússins.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð með útgengi út á suðvestur svalir. Eikarparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Innan íbúðar með góðri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gott vinnuborð og vaskur.
Geymsla: 5,7 fm sér geymsla með hillum í sameign.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign - einu sinni á ári er vorhreingerning sem húsfélagið stendur fyrir.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Eignin er mjög björt með glugga í þrjár áttir. Staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Smárahverfinu í Kópavogi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.
Þak, þakkantur og rennur var yfirfarið 2024.
Tréverk var málað og yfirfarið 2021.
Fyrir nánari upplýsingar:
Helgafell fasteignasala, S: 566 0000Rúnar Þór Árnason lgf., sími:
775 5805 / runar@helgafellfasteignasala.is
María Steinunn Jóhannesdóttir lgf., Sími
849-5002 / maria@helgafellfasteignasala.is