Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2026

Skútahvammur 1a - Úthlíð

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
127.6 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
508.621 kr./m2
Fasteignamat
61.800.000 kr.
Brunabótamat
68.300.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2205815
Landnúmer
167611
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt, 2000
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallar
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Kaupendum er bent á að skoða eignina vel og helst með fagmanni. Vart er við gólfhalla í eldra húsinu. Kominn er tími á endurbætur á rúðum og klæðningu. Upptalning þessi þarf ekki að vera endanleg.
 
Jón Smári Einarsson, s. 8606400, löggiltur fasteignasali, og Fasteignaland kynna: Skútahvammur 1a, 806 Bláskógabyggð 

Glæsilegt og vandað 127,6 fm sumarhús á 6.134 fm eignarlóð í Úthlíð á einum besta útsýnisstað í Biskupstungum. Einstakt næði, risastór timburverönd með hitaveitupotti, tvö aðskild sumarhús (aðalhús og fullbúið gestahús) og stórfenglegt útsýni til Heklu, Tindfjalla og Eyjafjallajökuls.

  * Skráð stærð: 127,6 fm
aðalhús byggt 2008 + gestahús byggt 1988.
  * Lóð: er skráð skv. breytingu á deiliskipulagi 6.134 fm (Samþ. 4.10.2012), eignarlóð, gróin kjarri og með trjám, rúmgott bílaplan með rauðamöl. Lóðin er skráð hjá HMS 4.867 fm.
  * Staðsetning: Einungis eru um 90 km frá Reykjavík og er svæði lokað með símahliði.

Nánari lýsing:
Aðalhús er um 79,3 fm á tveimur hæðum, þar af ris skráð 24,1 fm (er með 41,4 fm gólffleti) – byggt 2008
Húsið er vel skipulagt og bjart. Neðri hæð með hita í gólfi í steyptri plötu:

  * Forstofa:
Góð og flísalögð forstofa.
  * Eldhús: Parketlagt eldhús með góðu borðplássi (skráð sem herbergi á teikningu). Þaðan liggur stigi upp á efri hæðina.
  * Svefnherbergi neðri hæðar: Gott parketlagt svefnherbergi inn af eldhúsi, þaðan er útgengt út á suðurverönd.
  * Baðherbergi: Flísalagt með sturtu og snyrtilegri innréttingu.
  * Stofur: Beint af forstofu er gengið inn í góða parketlagða stofu/borðstofu. Við hlið hennar er önnur rúmgóð stofa með flísum á gólfi, en þaðan er útgengi á suðurveröndina sem tengir húsin tvö saman.
  * Efri hæð: Þar er snyrting og tvö rúmgóð svefnherbergi með miklu skápaplássi. Dúkur á gólfum.

Gestarými / Auka hús er um 48,3 fm (um 51,4 fm gólfflötur) – byggt 1988
Frábær viðbót sem býður upp á mikla möguleika fyrir stórfjölskylduna eða gesti. Húsið er áfast aðalhúsinu og mjög rúmgott í skipulagi:

  * Forstofa:
Góð og flísalögð forstofa.
  * Alrými & Eldhús: Opin og björt forstofa inn í rúmgott alrými. Eldhúshorn með uppþvottavél sem opið er inn í stofuna og við hliðina er lítið búr/geymsla. Frá alrýminu er útgengt út á verönd.
  * Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi; annað með hjónarúmi og hitt með kojum ásamt breiðu rúmi.
  * Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með sturtu og innréttingu.
  * Geymslur: Sér útigeymsla með aðstöðu fyrir þvottavél er staðsett við hliðina á innganginum.

Lóð, verönd og nágrenni
Aðkoman að eigninni er til fyrirmyndar með góðum bílastæðum norðan megin. Húsið stendur ofarlega og nýtur góðs næðis frá öðrum bústöðum á svæðinu.
Stór, samfelld timburverönd snýr til suðurs og teygir sig á milli beggja húsanna. Á veröndinni er heitur pottur (hitaveitupottur) þar sem hægt er að slaka á og njóta óskertar náttúrufegurðar og glæsilegrar fjallasýnar.
Á lóðinn er trjáræktarlundur með sólpalli og kofi fyrir börn. Einnig er lítil flöt með litlu fótboltamarki fyrir börn að leika sér.

Annað:
Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni, utan persónulegra muna.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 30.000 á ári.

Um svæðið Úthlíð
Sumarhúsasvæðið í Úthlíð er rómað fyrir snyrtileika og öfluga ferðaþjónustu. Svæðið er vandað, með hitaveitu og öryggishliði (símahlið).
Í Úthlíð er rekin fjölbreytt þjónusta, m.a. 9 holu golfvöllur, hestaleiga, veitingastaðurinn Réttin, heitir pottar og frábærar gönguleiðir.
Það er ekki langt í sundlaugar sem eru á Laugavatni, í Reykholti, á Flúðum og á Borg í Grímsnesi. Svo er stutt að fara og láta sér líða vel í Fontana spa á Laugarvatni, í Laugarás Lagoon í Laugarási eða í Secret Lagoon á Flúðum.
Stutt er í alla helstu ferðamannastaði: Geysir er í um 15 mínútna akstursfjarlægð og um 20 mínútur eru á Flúðir og Laugarvatn. Alls eru 3 golfvellir í næsta nágrenni.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt, stórt og fjölskylduvænt sumarhús á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu en næðið og útsýnið eru í fyrirrúmi.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (65)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarnastaðir, sv 2
Bjarnastaðir, sv 2
320 Reykholt í Borgarfirði
45 m2
Sumarhús
312
576 þ.kr./m2
25.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðalækur 20
Bílskúr
Skoða eignina Urriðalækur 20
Urriðalækur 20
800 Selfoss
115.5 m2
Parhús
312
671 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Opið hús:06. júní kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
54.9 m2
Fjölbýlishús
221
1200 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Efsti-Dalur B-gata
Efsti-dalur B-gata
806 Selfoss
66.5 m2
Sumarhús
312
465 þ.kr./m2
30.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin