Fasteignaleitin
Skráð 17. júní 2026

Kirkjuvegur 12

EinbýlishúsNorðurland/Ólafsfjörður-625
170.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.000.000 kr.
Fermetraverð
288.066 kr./m2
Fasteignamat
44.450.000 kr.
Brunabótamat
98.650.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 1925
Garður
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2154179
Landnúmer
151170
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott eftir því sem best er vitað
Raflagnir
Gott eftir því sem best er vitað
Frárennslislagnir
Gott eftir því sem best er vitað
Gluggar / Gler
Mjög gott fyrir utan leka við forstofuglugga sem er samt nýr
Þak
Gott að vitað er, járn og einangrun að hluta, hefur verið endurnýjuð
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Á ekki við
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Kirkjuvegur 12 - Ólafsfirði

Virkilega fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð með kjallara undir helming hússins. Eignin er samtals 170,1 fm. þar af er hæðin 125,7 fm. og kjallari sem hefur mikla möguleika er um 44,44 fm. 

Húsið var upphaflega barnaskóli en hýsti síðar bæjarskrifstofur og safnaðarheimili kirkjunnar sem stendur beint á móti húsinu eins og sjá má á myndum. 


Fyrir um 30 árum var allt húsið klætt að innan, vatn og rafmagn endurnýjað, nýtt þakjárn og skipt um glugga á húsinu. Síðan þá hefur verið drenað í kringum húsið 2017, skipt um gler á hæðinni 2019 og útidyrahurð 2020 samkvæmt fyrrum eiganda. Auk þess hefur innra rými verið breytt með þeim tilgangi að búa til íbúðarhúsnæði, t.a.m. eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu og fleira. 

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísar á gólfi, opnu fatahengi og skáp. 
Stofa og eldhús er í opnu rými. Parket er á gangi og á stofu sem er afar björt með aukinni lofthæð. Á eldhúsi eru flísar á gólfi, dökk innrétting með gaseldavél, stæði fyrir ísskáp og innbyggða uppþvottavél sem fylgir. Virkilega gott vinnupláss skapast með eyjunni sem er einnig góð hirsla. 
Í enda stofu er herbergi aðgreint með harmonikuhurð en þar væri hægt að gera varanlegan vegg. Í dag er það nýtt einnig sem skrifstofa.
Svefnherbergi við hlið eldhúss er með parket á gólfi og góðir fataskápar.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja, innréttingu í kringum vask, upphengt salerni, baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn, gluggi með opnanlegu fagi, stæði fyrir þvottavél og hægt að koma fyrir þurrkara ásamt innfrarauðri saunu sem getur fylgt með við kaupin. 

Í kjallara sem er aðgengilegur úr stofu um brattan stiga og er eins og áður sagði undir hálfu húsinu er gólf málað. Þar er einnig bakdyrainngangur en hurðin þar orðin léleg. Búið er að loka fyrir einhverja glugga. Þar eru inntök fyrir vatn. Möguleiki er að gera töluvert meira úr þessu rými. Undir hinum hluta hússins er skriðkjallari.

Annað: 
-Húsið var múrviðgert og málað fyrir um 2 árum
-Nýr gluggi í forstofu
-Bætt við einangrun á þakið og nýjar þakrennur
-Stétt og tröppur að húsi einnig endurgerðar fyrir um 2 árum
-Hiti í tröppum með affalli af húsinu
-Steypt girðing í kringum húsið með fallegu timburverki milli steyptra staura 
-Baðherbergi og eldhús endurnýjað
-Gólfhiti á baði og eldhúsi
-Möguleiki að fjölga herbergjum á kostnað stofu sem er afar rúmgóð
-Um 3 metra lofhæð í stofu
-Ljósleiðari
-Nýleg hitagrind og inntak fyrir kaldavatn ásamt öllu kaldavatnskerfinu í eigninni, komið í álpex
-Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð
-Einfasa bílhleðslustöð
-Rafmagnskamína í stofu getur fylgt
-Peningaskápur í kjallara fylgir. Ekki hefur tekist að opna hann af núverandi eigendum og því mögulegan fjársjóð að finna þar
-Góður hljómburður í húsinu
-Stutt í messu


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/09/202125.500.000 kr.31.000.000 kr.170.1 m2182.245 kr.
04/06/200910.230.000 kr.6.000.000 kr.170.1 m235.273 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshildarvegur 33
Bílskúr
Á einni hæð
Áshildarvegur 33
804 Selfoss
169.6 m2
Einbýlishús
413
504 þ.kr./m2
85.400.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17, með bílskúr
Bílskúr
Á einni hæð
Ísleifsbúð 17, með bílskúr
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Akralundur 17
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:27. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Akralundur 17
Akralundur 17
300 Akranes
183.6 m2
Raðhús
524
599 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
43
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin