Fasteignaleitin
Skráð 6. júlí 2026

Kjarrhólmi 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
98.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
748.734 kr./m2
Fasteignamat
68.500.000 kr.
Brunabótamat
52.950.000 kr.
ÞS
Þórir Skarphéðinsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
2. hæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2063291
Landnúmer
115267
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað 2019
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1

****EIGNIN ER SELD - ÁÐUR AUGLÝST OPIÐ HÚS FELLUR NIÐUR****


Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna Kjarrhólma 22, Kópavogi:

Björt, falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja útsýnisíbúð á annarri hæð (merkt 202) í Kjarrhólma 22. Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og geymslu í kjallara. Íbúðarrými er skráð 89,4 fm af HMS en til viðbótar er 9,3 fm sérgeymsla íbúðar í kjallara. Heildarstærð er því 98,7 fermetrar. Stutt í helstu þjónustu m.a. skóla, nokkra leikskóla auk þess sem eignin stendur við Fossvoginn og því stutt í útivistarsvæði bæði þar og í Elliðaárdal.  Mikil veðursæld er á þessu svæði og er eignin staðsett í botnlanga þannig að óviðkomandi umferð er nánast engin, nóg af bílastæðum. Húsið var hannað af Kjartani Sveinssyni.


Nánari lýsing: 
Gengið inn í anddyri íbúðar um snyrtilega, teppalagða sameign. 
Stofa íbúðar er rúmgóð og björt, með stórum gluggum til norðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir Fossvogsdalinn og Esjuna.
Endurnýjað harðparket á allri íbúð, utan baðherbergis og þvottahúss. 
Mjög snyrtilegt eldhús með góðu skápaplássi og stórum búrskáp. Ofn endurnýjaður 2022.
Svefnherbergi íbúðar eru þrjú; hjónaherbergi og tvö barnaherbergi.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum, parketi á gólfi og útgengi á stórar og skjólgóðar svalir til suðurs. Annað barnaherbergjanna er með glugga til suðurs og fataskáp en þriðja svefnherbergið er á milli stofu og eldhúss og er með glugga til norðurs. 
Baðherbergi íbúðar er endurnýjað, flísalagt og er með innréttingu og baðkari með sturtuhaus. Innan íbúðar er þvottahús í sérrými.
Í kjallara er hjólageymsla, þurrkherbergi og sérgeymsla íbúðar með glugga.
Á bak við hús er stór sameiginlegur garður með leiktækjum. 


* Umfangsmiklar framkvæmdir hafa verið á heildarhúsinu:
Á undanförnum árum hafa öll þök í lengjunni verið lagfærð, yfirfarin og/eða endurnýjuð, gluggaskipti á suður- og norðurhlið eftir þörfum, múrviðgerðir á öllu húsinu og málun sem gert er ráð fyrir að ljúki í ágúst 2026. Árið 2023 voru allar svalir hússins slípaðar og sett á þær epoxy. Seljendur greiða áætlaðan kostnað íbúðar vegna yfirstandandi framkvæmda.

Um er að ræða góða og vel skipulagða eign á eftirsóttum og rólegum stað við útivistarparadísina Fossvogsdalinn. Einnig er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/202038.750.000 kr.44.600.000 kr.89.5 m2498.324 kr.
06/09/201162.300.000 kr.18.000.000 kr.98.7 m2182.370 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarhjalli 63
Efsta hæð
Hlíðarhjalli 63
200 Kópavogur
82.9 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjasmári 4
Skoða eignina Lækjasmári 4
Lækjasmári 4
201 Kópavogur
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
807 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 10
Skoða eignina Gullsmári 10
Gullsmári 10
201 Kópavogur
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
809 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 40 - Íbúð 410
Stefnisvogur 40 - Íbúð 410
104 Reykjavík
95.1 m2
Fjölbýlishús
312
903 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin