Atvinnueign kynnir til sölu eða leigu: Nýlegt, glæsilegt steinsteypt atvinnuhúsnæði við Bæjarflöt 9 í Grafarvogi.
SELJANDALÁN Á 2. VEÐRÉTT MÖGULEGT.Eign sem hentar mjög vel fyrir litla/millistóra heildsölu með háum hillurekkum.Atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum sem býður upp á mikla möguleika varðandi notkun og innréttingu en húsnæðið er fullbúið. Laust nú þegar.
Fullbúin bílastæði og góð aðkoma. Um er að ræða 231,5 fm. skv. fasteignaskrá Þjóðskrár í steyptu húsi frá 2019, eignarhlutur 01-0103.
Eignin er á tveimur hæðum.
Jarðhæðin er 120 fm. að grunnfleti, epoxy á gólfi og góðri lýsingu, lofthæð er um 4,2 metrar, tvennar innkeyrsluhurðir; að framan 3,9 metra há og innkeyrsluhurð af aftan 3,0 metra há. Rýmið er opið með salernisaðstöðu.
Efri hæðin er; 111,5 fm. Góður stigagangur er á milli hæða sem aðskilur rýmin/hæðirnar. Á efri hæð er skrifstofa, eldhús. Þvottaaðstað/geymsla og baðherbergi sem er flísalagt með handlaug og salerni ásamt sturtu. Restin af efri hæðinni er í einu, opnu alrými en auðvelt er að skipta því frekar upp með léttum veggjum. Efri hæðin er björt með góðum gluggum á tvo vegu og gefur möguleika á ýmiskonar nýtingu svo sem sem skrifstofur eða önnur sameiginleg rými.
Staðsetningin er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, mjög góð aðkoma og gegnumkeyrsla býður upp á ýmsa notkunar möguleika. Sveigjanlegt skipulag innra rýmis og góð bílastæði.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:Halldór Már Sverrisson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
898-5599 eða
halldor@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu atvinnueign.is- Atvinnueignir eru okkar fag -