RE/MAX ásamt ÞÓRDÍS DAVÍÐS, lgf & SALVÖR DAVÍÐS, lgf kynna:Vel staðsett og góð 4-5 herbergja sér efri hæð með sérinngangi í tvíbýli á þessum vinsæla stað í Kópavogi.
Fallegt útsýni er yfir Elliðavatn, Heiðmörk, Bláfjöll og Reykjanes. Stutt er í alla helstu þjónustu, sund, skóla, leikskóla og fallegar gönguleiðir.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 107.250.000,-SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS
* 4 svefnherbergi
* Baðherbergi og gestasnyrting
* Opið eldhús með góðri vinnuaðstöðu
* EINSTAKT ÚTSÝNI
* Suður svalir
* Geymsla innan íbúðar
* 2 sérmerkt bílastæðiSMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D, þrívíðu umhverfi. 3D = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.
Hægt er að smella á yfirstrikað stólamerkið til þess að skoða eignina án húsgagna - HÉRUpplýsingar um eignina.Eignin er skráð 134,4 fm hjá HMS og saman stendur af forstofu, geymslu, þvottahúsi, eldhúsi, borðstofu, stofu, 4 svefnherbergjum, baðherbergi, gestasnyrtingu, svölum og góðum garði í sameign við aðrar íbúðir í Asparhvarfi 17. Húsfélagið hefur sérmerkt íbúðinni 2 bílastæði. Um er að ræða sérlega skemmtilega íbúð í góðu tvíbýlishúsi.
Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Gestasalerni er
á vinstri hönd þegar komið er inn úr forstofu og eru flísar í hólf og gólf.
Geymsla og þvottahús eru í sameiginlegu rými og flísar á gólfi. Inni í geymslunni er fataskápur úr einu herbergjanna.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými með harðparketi á gólfi.Í
eldhúsi er hvít innrétting með dökkri borðplötu, gas helluborði og háfi þar yfir, tengi fyrir uppþvottavél, gluggi til suðurs, eyja með skápum og háborði. Vnnupláss er einnig gott, bakaraofn í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn.
Borðstofa og stofa: Eru samliggjandi í opnu og björtu rými með útgengi á suður svalir með einstöku útsýni.
Við borðstofuna er búið að setja upp vegg fyrir 4ða herbergiðHjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergin eru 3: Fataskápur er í einu þeirra en upphaflega var skápur í tveimur (skáparnir úr öðru herberginu eru geymslunni). 3ja barnaherbergið var uppsett af seljendum og eru veggurinn ofan á parketinu og því auðvelt að taka án þess að eftir sitji sár í gólfinu.
Hurðar: Hvítfimaðar eikarhurðar.
Bílastæði: Húsfélagið hefur sérmerkt íbúðinni 2 bílastæði.
Á lóðinni Asparhvarf 17 sem er 2930,0 fm standa tvö einbýlishús og þrjú tvíbýlishús. Asparhvarf 17A-17E.
Sjá eignaskiptayfirlýsingu sbr. skiptingu. Vagna- og hjólageymsla er í sameign Asparhvarfs 17B-17D.Um er að ræða góða fjölskyldueign á þessum vinsæla og góða stað þar sem öll þjónusta er innan seilingar og stutt í náttúruna og fallegar gönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Davíðs, lgf., í síma 862-1914 eða á thordis@remax.is Salvör Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is---------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
ERTU í fasteignahugleiðingum? Við kíkjum til þín í spjall !
Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug.
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag!
- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is