
Viltu kynnir virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á 2.hæð í mikið endurnýjuðu húsi við Sólvallagötu 66. Húsið er á frábærum stað í gamla Vesturbænum. Stutt í alla þjónustu, skóla og frístunda aðstöðu og allt sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Eignin skiptist t í forstofu/gang, baðherbergi, stofu, eldhús með útgengi á svalir ,tvö barnaherbergi, hjónaherbergi með útgengi á svalir og geymslu. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 101,3 m2 ásamt 3,6 m2 geymslu. Samtals 104,9 m2.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, karolina@viltu.is
*** Þrjú svefnherbergi
*** Tvennar svalir
*** Á besta stað í 101 Reykjavík
*** Stutt í alla helstu þjónustu
Nánari lýsing
Anddyrir/Gangur er með gegnheilu parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri nýlegri hvítri innréttingu með ljúflokunum á skúffum. Gram ofn og Span helluborð. Fallegar flísar fyrir ofan innréttingu. Gegnheilt parket er á gólfi. Útgengi er á svalir úr eldhúsinu.
Stofan/borðstofa er með gegnheilu parketi á gólfi og stórum gluggum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er með gegnheilu parketi á gólfi og fataskáp á heilum vegg og útgengi út á svalir.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta til á veggjum. Baðkar með sturtu. Opnanlegur gluggi. Falleg innrétting með marmarflís á borðplötu og vaski ofaná og stórum hringspegli fyrir ofan.
Sameiginlegt þvottahús sem hver og einn er með sína þvottavél. Einnig eru hillur á móti þvottavélunum sem hver og einn er með sitt hillupláss.
Geymsla er í sameign með hillum og dúk á gólfi.
Snyrtilegur stigagangur.
Helstu endurbætur.
2014 var húsið steinað að framanverðu.
2018 var húsið steinað að aftanverðu.
2017 var þakið yfirfarið og málað og skipt um þakrennur.
2016-2017 var skipt um glugga og gler.
2019 ný eldvarnarhurð.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 07/10/2019 | 50.100.000 kr. | 54.900.000 kr. | 104.9 m2 | 523.355 kr. | Já |
| 06/06/2012 | 24.250.000 kr. | 23.500.000 kr. | 102 m2 | 230.392 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 210 | 225 | ||
221 | 80,1 | 66,4 | ||
110 | 102 | 79,9 | ||
102 | 92,5 | 92,9 | ||
102 | 90 | 93,9 | ||
102 | 186,9 | 189,9 |