Fasteignaleitin
Skráð 14. okt. 2025

SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
80 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.000.000 kr.
Fermetraverð
737.500 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
29198282
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir og svalir frá stofu
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *PENTHOUSE Í FLAMENCA VILLAGE, PLAYA FLAMENCA* *ÞAKSVALIR MEÐ SJÁVARÚTSÝNI* *SUNDLAUGAR, LÍKAMSRÆKT, GRÓIÐ UMHVERFI Á LOKUÐU SVÆÐI* *LYFTA OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU*

Lokað svæði, gróið og fallegt umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús/bar og ótal margt fleira sem gerir þetta án efa að flottasta íbúðahverfinu á Costa Blanca svæðinu.

Vönduð 3ja herb. íbúð á frábærum stað á Playa Flamenca, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina, 10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð í frábæru umhverfi. 

Upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 


Nánari lýsing:
Eignin er í nýlegu lyftuhúsi og henni fylgir geymsla og stæði í bílageymslu. 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi. Eldhús skemmtilega opið við stofu. Frá stofu er gengið út á svalir. Eigninni fylgja rúmgóðar þaksvalir með frábæru útsýni til sjávar. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu, kaffihúsi/bar ofl. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar.

Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. La Zenia, Playa Flamenca og La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu, veitingastaðir og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýlega og vandaða íbúð á þessum vinsæla stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Verð 409.000 evrur / 59.300.000 ISK miðað við gengi 1Evra=145 ISK

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við aðstoðum okkar viðskiptavini við greiðslumatið.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílakjallari, sundlaugargarður, air con, svalir, þakverönd, nálægt strönd, lyfta, sjávarútsýni
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca, Flamenca village
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
29198282

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nónvarða 6
Skoða eignina Nónvarða 6
Nónvarða 6
230 Reykjanesbær
92.3 m2
Fjölbýlishús
312
638 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Klukkuvellir 5
Skoða eignina Klukkuvellir 5
Klukkuvellir 5
221 Hafnarfjörður
104 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkavellir 1B efsta hæð
Bjarkavellir 1B efsta hæð
221 Hafnarfjörður
72 m2
Fjölbýlishús
312
888 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (122)
Opið hús:12. apríl kl 14:30-15:00
IMG_1497.JPG
Skoða eignina Laugaborg (122)
Laugaborg (122)
105 Reykjavík
112.2 m2
Fjölbýlishús
312
961 þ.kr./m2
107.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin