Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Austurbrú 2 - 303
Glæsileg og sérstaklega vönduð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu 3ja hæða fjölbýli í miðbæ Akureyrar og með einstöku útsýni.
Íbúðin er 121,2 fm og er í norðausturhorni hússins, þar af er 8,0 fm einkageymsla í kjallara. Auk þess eru í íbúðinni um 7 fm. undir 1,8 metra salarhæð og teljast því ekki með gólffleti en nýtast. Rúmgott geymsluloft yfir baðherbergi holi, forstofu og hálfu þvottahúsi (u.þ.b. 14 fm, gengið um fellistiga úr þvottahúsi). Íbúðin er með tvennum svölum, aðrar snúa til austurs með útsýni yfir Pollinn, Oddeyri og Kaupangsbyggð, hinar til vesturs í átt að Akureyrarkirkju og Sigurhæðum.
Eigninni fylgir stæði í hálf niðurgröfnum bílakjallara, steinsnar frá stigahúsi og lyftu.
Eignin skiptist í anddyri og hol, baðherbergi, þvottahús, tvö herbergi, skrifstofa/herbergi, stofa og eldhús ásamt geymslu og stæði í bílgeymslu í kjallara og hlutdeild í sameign.
Nánari lýsing eignar:
Eldhúsið er með tækjum frá Siemens. Spanhelluborð, vifta/háfur og bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði, sambyggður örbylgju-bakaraofn, innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Innrétting í eldhúsi er sérsmíðuð af Brúnás, með 3 sm þykkri steinborðplötu, spónlögð með ljósri eik.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum. Innréttingar eru sprautulakkaðar frá Brúnás. Sturtugólf er einhalla með glervæng, handklæðaofn og vegghengt salerni. Stein borðplata á borði, samskonar og í eldhúsi.
Í þvottahúsi eru mjög góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skápum, skúffum og vask.
Svefnherbergi og skrifstofa er með uppeknum loftum og undir súð að hluta. Svefnherbergi eru rúmgóð.
Annað:
-Hljóðeinangrunargler er í öllum gluggum.
-Innfelld lýsing er í allri íbúðinni nema þvottahúsi, en þar er loftljós.
-Í tveimur herbergjum og í forstofu eru spónlagðir skápar. Sams konar flísar eru á öllum gólfum.
-Húsið er upphituð með Rehau gólfhitakerfi, hitastillir er í hverju herbergi.
-Neysluvatn er með varmaskipti og vélrænt útsog er frá baðherbergjum.
-Snjóbræðsla er í bílageymslurampi og innangengt er úr kjallara inn í bílakjallara og hjólageymslu.
-Pottrör eru í skólplögnum með tilliti til til hljóðvistar.
-Sérmælt öryggi er tilbúið á aðaltöflu fyrir bílahleðslu og búið að leggja kapal að bílastæði, 3 fasa 16A.
-Í húsinu Austurbrú 2-4 eru alls 16 íbúðir, tveir stigagangur og tvær lyftur.
-Staðsetning
Austurbrú er staðsett í miðbæ Akureyrar. Örstutt er á Ráðhústorg, Samkomuhúsið, Hof, Akureyrarkirkju og Sundlaug Akureyrar. Fjarlægð til þessara staða eru á bilinu 3-700 m. Þá er fjöldi veitinga- og skemmtistaða á næstu grösum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955