ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Tjarnabraut 8A, 2birt stærð 100.0 fm. Um er að ræða 3ja herbergja bjarta íbúð á jarðhæð með sólpalli. Íbúðin er vel skipulögð með sér þvottahúsi og geymslu innan íbúðar. Sex íbúðir eru í stigagangi.
Nánari upplýsingar veita:Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma
560-5501, tölvupóstur
pall@allt.isÍbúðin skipstist í forstofu, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og geymslu inna af eldhúsi. Aflokaður sólpallur út frá stofu.
Nýlegt parket er á eigninni.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er parketlögð og fataskápur
Þvottahús er staðsett við forstofu og hefur skolvask
Svefnherbergi með skáp
Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, upphengdu salerni og innréttingu ásamt handklæðaofn
Hjónaherbergi með góðum fataskápum
Stofa er rúmgóð og björt með glugga á tvo vegu
Eldhús samlyggjandi við stofu
Geymsla er inn af eldhúsi
Í sameign er hjólageymsla með útgengni út á baklóð.
Húsfélagið er með tvö trampolín sem þau setja upp yfir sumartíman. Næg bílastæði er við eignina. Stutt er á Fitjar og út á Reykjanesbraut. Eignin er staðsett í Akurskólahverfi og er í stuttu göngufæri við leikskóla.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.