SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG NÝLEG ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM* *FULLBÚIN HÚSGÖGNUM* *SÉR GARÐUR MEÐ EINKASUNDLAUG OG JACUZZI* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU OG SÉR GEYMSLA* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR MEÐ SÓLBAÐSAÐSTÖÐU* *LÍKAMSRÆKT OG SAUNA*Sérlega glæsileg og vel hönnuð íbúð á jarðhæð á Las Colinas golfsvæðinu. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Rúmgóð íbúð, þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, gestasnyrting, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við góðan sér garð með einkasundlaug og heitum potti. Sér bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu. Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu, líkamsrækt og sauna.
Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is , sími 0034 615 112 869
Lýsing:Glæsileg íbúð með rúmgóðu alrými sem sameinar stofu, borðstofu og vandað eldhús. Stór sér 56 fm verönd/garður út frá stofu með einkasundlaug og heitum potti. Að auki er sér garður aftan við húsið þar sem finna má þvottaaðstöðu. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, þrjú baðherbergi og gestasnyrting. Afskaplega fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu. Í sameign er einnig líkamsrækt og sauna. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
ÞESSI ÍBÚÐ ER Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI OG SELST FULLBÚIN HÚSGÖGNUM.Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum. Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkamsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, s.s. La Finca, glæsilegur PGA golfvöllur, ásamt Las Ramblas, Campoamor og Villamartin. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
Verð 890.000 evrur (129.100.000ISK miðað við 1Evra=145ISK.)SKOÐUNARFERÐIR:Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, nýleg eign, einkasundlaug, húsgögn, heitur pottur,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,