Miklaborg kynnir: Fallegt einbýlishús á góðum stað í Grundarfirði. Stór lóð fylgir eigninni og tvöfaldur bílskúr sem er um 50 m². Húsið er með stórum stofum og búið er að byggja fallega 30 m² sólstofu sem snýr út í garðinn.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu og þar fyrir framan eru stórar stofur ásamt 30 m² sólstofu sem snýr út í garðinn. Gengið er upp tröppur á efri hæð og þar er rúmgott hjónaherbergi með svölum og til hliðar er baðherbergi. Til hliðar við stofur á aðalhæð hússins er eldhús og svefnherbergi sem í dag er nýtt sem skrifstofa. Á neðri hæðinni er svefnherbergi ásamt gufubaði og sturtu. Húsið er tvískipt en í miðju þess er opið rými og þar eru stofa, þvottahús og geymsla. Gólfefni á húsinu eru ýmist parket eða flísar. Tvöfaldur bílskúr sem er tæplega 50 m² fylgir eigninni og er innangengt úr honum í húsið. Vel má hugsa sér að vera með atvinnustarfsemi í hluta hússins og bílskúr enda sér aðkeyrsla að bílskúrum og malbikað bílaplan. Nóg af bílastæðum er á lóð hússins sem er 1.415 m².
Fallegt hús á góðum stað í bænum og einungis nokkra mínútna gangur í skóla og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 - throstur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 252,6 | 220 | ||
625 | 248,2 | 67,9 | ||
270 | 205,2 | 169,5 | ||
200 | 153,4 | 149,9 | ||
800 | 217,3 | 101,9 | ||
805 | 214,8 | 109 |