Fasteignaleitin
Skráð 5. apríl 2023

Hlíðarvegur 22

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Siglufjörður-580
168.8 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
37.800.000 kr.
Fermetraverð
223.934 kr./m2
Fasteignamat
37.850.000 kr.
Brunabótamat
66.190.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fasteignamidlun.isEignalisti
Byggt 1934
2. hæð · efsta
Garður
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2230402
Landnúmer
142543
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Lóð
65,5
Upphitun
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Leki er í þaki upp í sjónvarpsholi. Leki er við glugga í stofu. Skemmd er í gólfi í sjónvarpsholi þar sem skýli gengur út úr vegg fyrir inngang eignarinnar. 
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 22, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 223-0402 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-0402, birt stærð 168.8 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða efri hæð og ris í tvíbýlishúsi með skjólgóðum garði og bílskúr. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.

Neðri hæð er um 82m² og samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

Forstofa: er flísalögð með góðu fatahengi. 
Eldhús: er með hvítum innréttingum og dökkri borðplötu. Fallegt útssýni yfir fjörðinn er úr eldhúsi. 
Stofa/borðstofa: liggja saman í opnu rými með parket á gólfi. Gott gluggapláss er í rýminu með fallegu útsýni. 
Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með fibo tresbo plötum á veggjum og flotuðu gólfi. Einnig er baðkar með sturtu og gleri, upphengt salerni og innrétting. Aðgengi er að geymslu undir stiga inn af baðherbergi. 
Þvottahús: er með góðu skápaplássi og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Golf er flotað og til staðar er opnanlegur gluggi. 
Geymsla: er inn af anddyri en einnig er gott geymslupláss undir stiga. 

Ris er um 58m² að hluta til undir súð og samanstendur af 3 svefnherbergjum, rúmgóðu sjónvarpsrými og geymslu. Þakgluggar eru í öllum rýmum sem voru endurnýjaðir árið 2025. Risið var tekin í gegn árið 2007 en þá voru veggir klæddir og korkur settur á gólf. Hitaveiturofnar á efri hæð voru settir upp árið 2019. 

Svefnherbergi: eru mjög rúmgóð með kork á gólfi. 
Sjónvarpsrými: er mjög rúmgott með kork á gólfi. 
Geymsla: er með góðu hilluplássi og kork á gólfi. 

Eignin er byggð í Funkis stíl og er múrhúðað að utan. Byggð hefur verið rúmgóð timburverönd fyrir framan inngang eignarinnar með skýli fyrir norðanátt og einnig fyrir ofan inngang.
Bílskúr er á lóð eignarinnar sem er skráður 28,8 m². Hann er klæddur með bárujárni, óeinangraður og án hita og rafmagns en gefur ýmsa möguleika. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1957
28.8 m2
Fasteignanúmer
2230402
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.240.000 kr.

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 19
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:27. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Rauðalækur 19
Rauðalækur 19
105 Reykjavík
164.4 m2
Hæð
724
699 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin