Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2021

Langahlíð 6 íbúð 201

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
188.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.500.000 kr.
Fermetraverð
443.913 kr./m2
Fasteignamat
70.300.000 kr.
Brunabótamat
80.660.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2148551
Landnúmer
148642
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
óþekkt
Raflagnir
Búið er að endurnýja tengla en taflan er gömul
Frárennslislagnir
Var að sögn fyrri eiganda nýleg endurnýjar þegar þau keyptu 2012
Gluggar / Gler
Gluggar eru gamlir og komin móða á milli í einhverjum
Þak
Pappi var endurnýjaður fyrir einhverjum árum.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóðar suðvestur svalir, eftir er að tvöfalda skjólvegg, timbur fylgir
Lóð
41,2
Upphitun
Hitaveita - skipt var um hluta af ofnalögnum í okt 2025
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
* Sprunga er í vegg milli eldhúss og stofu. * Erfitt er að opna opnanlegt fag í glugga á ganginum. * Eftir er að klæða skjólvegg á svölum að utan, timbur fylgir. * útfellingar eru í einu barnaherbergi og stigauppgöngu eftir leka. * útfelling er í geymslu í kjallara.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Langahlíð 6 íbúð 201 - Skemmtileg 5-6 herbergja efri hæð með sér inngangi og bílskúr í fjórbýlishúsi á vinsælum stað í Glerárhverfi - stærð 188,1 m²


Eignin skiptist í forstofu, stigapall, eldhús, sjónvarpshorn, stofu og borðstofu, gang, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallaranum er herbergi/geymsla.

Forstofa og stigapallur eru með gráum flísum á gólfi og á stiga er grátt teppi. Á stigapallinum er stór fataskápur. 
Eldhús var endurnýjað árið 2014. Sérsmíðuð hvít sprautulökkuð innrétting og eyja frá Tak innréttingum með flísum á hluta veggja. AEG span helluborð og ofn.
Sjónvarpshorn er með ljósu harðparketi á gólfi og stórum glugga til vesturs. 
Stofa og borðstofu eru í opnu rými, þar er ljóst harðparket á gólfi og stórir gluggar til suður og vesturs og hurð út á rúmgóðar suðvestur svalir sem voru stækkaðar fyrir nokkrum árum.
Gangur er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum fataskápum. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi, öll með ljósu harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp og svo hjónaherbergi með fataherbergi inn af.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2016. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, sturta og opnanlegur gluggi. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherberginu. 
Í kjallaranum er herbergi/geymsla með dúk á gólfi og opnanlegum glugga.  
Bílskúr er skráður 28 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og út í hann liggur rafmagn en ekkert rennandi vatn. Hann er kynntur með lausum rafmagnsofni í dag. Fyrir framan er steypt og hellulagt bílaplan.

Annað
- Baðherbergi, gólfefni í forstofu og á stig og innihurðar var endurnýjað árið 2016. Þá voru inntök endurnýjuð og hluti af bílaplani og stétt hellulagt.
- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar.
- Eldhús var endurnýjað árið 2014.
- Pappi á þaki var endurnýjaður fyrir nokkrum árum. Hitakapall var settur í þakrennu árið 2023.
- Húsið var málað að utan sumarið 2020.
- Stutt í ýmsa þjónustu, verslun, skóla og leikskóla.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/10/202142.150.000 kr.57.500.000 kr.188.1 m2305.688 kr.
02/05/201220.650.000 kr.22.000.000 kr.188.1 m2116.959 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1974
28 m2
Fasteignanúmer
2148551
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.160.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsbraut 15
Skoða eignina Dalsbraut 15
Dalsbraut 15
260 Reykjanesbær
85.3 m2
Fjölbýlishús
312
702 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Lindarbraut 10
IMG_8422.JPG
Skoða eignina Lindarbraut 10
Lindarbraut 10
170 Seltjarnarnes
116.7 m2
Fjölbýlishús
413
976 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 47
Opið hús:07. apríl kl 17:30-18:00
Skoða eignina Holtsvegur 47
Holtsvegur 47
210 Garðabær
105.1 m2
Fjölbýlishús
213
694 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 6
Bílskúr
Skoða eignina Austurberg 6
Austurberg 6
111 Reykjavík
111.9 m2
Fjölbýlishús
414
625 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin