Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2026

Laugaborg - Þaksvalir (601)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
175.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
259.000.000 kr.
Fermetraverð
1.478.311 kr./m2
Brunabótamat
107.950.000 kr.
GM
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteignasali
https://miklaborg.isEignalisti
Byggt 2025
6. hæð · efsta
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2537439
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Hér er á ferðinni einstök penthouse íbúð á efstu hæð hússins, staðsett við hjarta viðskiptalífsins þar sem stutt er í veitingastaði og menningu. Íbúðin skartar frábæru útsýni sem nýtur sín til fulls frá tveimur stórum þaksvölum (samtals um 92 fm) þar sem önnur snýr til suðurs en hinar er kvöldsvalir sem skarta fallegu útsýni í í átt að miðbænum í vestur.  Á þaksvölum eru tengingar fyrir heitt og kalt vatn og gert er ráð fyrir heitum potti. Innan dyra tekur við glæsilegt alrými (68 fm) með aukinni lofthæð, eldhúseyju og sjónvarpsholi. Svefnherbergin eru þrjú, þar af master svíta með fataherbergi og sér baðherbergi. Tvö baðherbergi og sér þvottahús eru í íbúðinni. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílgeymslu.


Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is


Laugaborg við Kirkjusand er nýtt fjölbýlishús á 3–6 hæðum með skjólgóðum inngarði og sameiginlegum þakgarði sem býður upp á notalegt útsýni og dýrmætar stundir utandyra – í miðbænum sjálfum. Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og skipulagi, allar með gólfhita, vönduðum innréttingum og svölum eða sérafnotafleti. Allur úthringur hússins er með svalalokun sem stenst íslensk skilyrði og þolni stuðla. Alls verða bílastæði fyrir tæplega 1000 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum. Lyftur eru í öllum stigagöngum. Ítarlegar upplýsingar má sjá á https://105midborg.is/ibudir/borgartun-41

Bílakjallari: Stór samfelldur bílakjallari og hafa íbúar möguleika á aðgangi að einu eða fleiri bílastæðum í þessum bílakjallara gegn hóflegugjaldi til að mæta rekstrarkostnaði.

Nýr íbúðakjarni sem samanstendur af 115 íbúðum á 6 hæðum afhendast í 4 áföngum . Íbúðarkjarninn í randbyggðarformi umhverfis innigarð. Húsið er partur af nýju hverfi á Kirkjusandi. Græn svæði umlykja bygginguna ásamt þakgarði.

Sjálfstætt loftræstikerfi í öllum íbúðum. Frábær staðsetning rétt við Laugardalinn mikil áhersla er lögð á vistvænar samgöngur og góða aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi í hverfinu.

NÁNARI LÝSING:

Íbúð 601 er glæsileg íbúð á 6. hæð með tvennum stórum þaksvölum að stærð 49,0 fm og 42,9 fm. Íbúðin skipar, forstofu, hjónasvítu með fataherbergi og sér baðherbergi, tvö auka herbergi, annað baðherbergi, þvottahús og sjónvarpshol. Glæsilegt alrými með stórri borðstofu, stofu og eldhúsi með eyju og útgengt út á stórar þaksvalir.
Forstofa: er með með fataskáp sem nær upp í loft.

Hjónasvíta: Stór hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi inn af því.
Svefnherbergi: Tvö auka herbergi, útgengt á svalir úr öðru þeirra.

Aukaherbergi/Sjónvarpshol: opið herbergi sem býður upp á þann möguleika að bæta við fjórða svefnherberginu.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting úr ljósri létthvíttaðri eik með quartz Technistone plötu frá Rein í lit Mystery white á borði, eldhúseyja með sömu plötum á borði og meðfram hliðum eyjunar. Eldhús skilast með vönduðum tækjum frá Siemens, Span helluborði með innbyggðum gufugleypi og bakaraofn með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði.
Stofa/alrými: Björt og stór stofa og borðstofa sitt hvorum megin við eldhús í alrýminu, útgengt á stórar þaksvalir.
Baðherbergi: Baðherbergin eru með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger. Borðplata með sömu quartz plötum og í eldhúsi. Sturta með Unidrain gólfrennupakka. Flísar á böðum eru frá Ítalíu, Píemme, seria Journey, litur Otta, stærð 60*120 cm á gólf og veggi, einn veggur með skrautflísum stærð 30*60 cm.

Þvottahús: Innan íbúðar með flísum á gólfum og upphengdum innréttingum.

Geymsla: 13,1 fm

Þaksvalir I: 49,0 fm

Þaksvalir II: 42,9 fm

Allir fata- skápar/forstofuskápar eru sérsmíðaðir og eru ljós grábrúnir á lit með svart lökkuðum handföngum. Innbyggðar skúffur með ljúflokun.

(Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign)

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenimelur 47
Bílskúr
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Grenimelur 47
Grenimelur 47
107 Reykjavík
171.3 m2
Hæð
514
922 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Eskihlíð 16
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eskihlíð 16
Eskihlíð 16
105 Reykjavík
119.1 m2
Fjölbýlishús
311
730 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 6
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 6
Dugguvogur 6
104 Reykjavík
106.9 m2
Fjölbýlishús
312
780 þ.kr./m2
83.400.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin