OPIÐ HÚS - ESPIGERÐI 4 - MIÐVIKUDAGINN 30 APR. - FRÁ KL.17.30 - 18.00.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Rúmgóða 4ra til 5 herbergja 117,0 fm horníbúð á 7. hæð í snyrtilegu fjölbýli með miklu útsýni. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin misseri m.a. voru gluggar yfirfarnir og gler endurnýjað eftir þörfum 2016, tréverk málað 2021, þak málað 2022 og skólplagnir undir húsinu endurnýjaðar 2024. Rafmagnshleðslustöðvar á bílaplani, salur og þaksvalir á 9. hæð fyrir íbúa hússins.
Hugguleg eign sem stendur miðsvæðis í borginni og stutt í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla og aðra almenna þjónustu.
Íbúðin er 109,4 fm (merkt 02-0705) og geymslan er 7,6 fm (merkt 02-0140) samtals er eignin 117,0 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með parketi á gólfi og skápum.
Hol er með parketi á gólfi
Stofan er rúmgóð og er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á tvennar svalir, aðrar til austurs og hinar til norðurs.
Eldhús er með parketi á gólfi og snyrtilegri viðarinnréttingu.
Svefnherbergin eru 3 og eru með parketi á gólfi og í aðalsvefnherbergi er fataherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, wc, baðkar með sturtu og innrétting undir vask.
Þvottahús er innan íbúðar og er með dúk á gólfi, vaskur, vinnuborð og hillur.
Geymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.