Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð, samtals 90,5 fm á þessum eftirsótta stað við Herfjólfsgötu í Hafnarfirði.
Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri og er í lyftuhúsi yfirlbyggðar Suð-austur svalir. Frábært útsýni yfir hraunið og höfnina/fjörðinn.
Eignin er laus strax.Eignin skiptist m.a. þannig:
Forstofa, skápur, hol, björt og rúmgóð stofa og borðstofa, með útg. út á s.svalirnar.
Bjart
eldhús er opið inn í stofurýmin, ljós innrétting og góð tæki.
Þvottaherbergi innaf eldhúsi með flísum á gólfi.
Rúmgott
svefnherbergi með skáp,
innaf er rúmgott
baðherbergi með fínni sturtuaðstöð og ljósri innréttingu, þaðan er síðan líka hægt ganga inn í holið þ.e. frá baðherberginu. Parket ljóst er á gólfum eignar.
Sameign er snyrtileg og fín en þar er m.a. líka félagsaðstaða íbúa.
Rúmgóð sérgeymsla er í sameign auk góð hefðbundin sameign.
Húsið er að mestu klætt að utan og því viðhaldslétt.
Góð bílastæði og snyrtilegur garður.Þetta er mjög áhugaverð eign á besta stað, sem vert er að skoða Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.