Fasteignaleitin
Skráð 7. apríl 2026

Brekkuland 4A

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
339.6 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
310.000.000 kr.
Fermetraverð
912.839 kr./m2
Fasteignamat
201.050.000 kr.
Brunabótamat
205.800.000 kr.
Mynd af Hafdís Rafnsdóttir
Hafdís Rafnsdóttir
Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083168
Landnúmer
124261
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Uporunalegt að hluta
Raflagnir
Uporunalegt að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegt að hluta
Gluggar / Gler
Uporunalegt að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
svalir til suðurs
Upphitun
gólfhiti/ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir: Einstakt og sérlega glæsilegt 339,6 m2 einbýlishús á pöllum með sérstæðum bílskúr og einstaklega vel hannaðri stúdíóíbúð þar yfir við Brekkuland 4A í Mosfellsbæ.
Eignin skiptist í  255,2 m2 listilega hannað einbýlishús (sjónsteypa) á þremur pöllum ásamt stórum sérstæðum 42,2 fermetra bílskúr og glæsilegri 42,2 m2 stúdíóíbúð fyrir ofan bílskúr sem veitir möguleika á góðum leigutekjum.  Náttúruparadís er í næsta nágrenni sem sést vel frá húsinu.
Staðsetningin er afar góð á stórri eignarlóð, rétt ofan við Álafosskvosina, með útsýni yfir Álafoss og með Varmárdalinn, Helgafell ásamt Lágafelli og Úlfarsfelli í suðvestur. Þarna eru fallegar gönguleiðir og önnur útivist í göngufæri.
Húsið er hannað og teiknað af Halldóri Gíslasyni arkitekt og hefur meðal innlendra og erlendra umfjallana prýtt forsíðu arkitektablaðsins. Við hönnun hússins lagði arkitektinn áherslu á að hið fagra útsýni og nánasta umhverfi nyti sín sem best, þ.e. yfir Álafosskvosina og Álafossinn. Kistufell í Esju er í raun frummynd í hönnun hússins. Húsið er steinsteypt úr sjónsteypu og var tekið tillit til sólargangs við hönnun og staðsetningu hússins á lóð. Þakbrún er úr ryðfríu aluzinki. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Anddyri: Er vel opið með nýrri og einstaklega stórri álhurð í glæsilegri umgjörð (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu í flestum gólfum eignarinnar) og sérsmíðuð millihurð á sveifluöxli frá anddyri í hol.
Baðherbergi: Með upphengt salerni og Duravit innréttingu og náttúrulegum steinvaski, veggir með steinefnasparsli.
Eldhús: Stórt með sérsmíðaða, glerklædda eldhúsinnréttingu frá Häcker með Gaggenau tækjum (bakara-og grillofn, gufuofn, hitaplata og tvöfaldur vínkælir), gott pláss fyrir borðstofuborð í stækkaðri borðstofu með glæsilegu útsýni. Í eldhúsinu er einstaklega stór eldunareyja úr hitaþolnu Dekton steinefni með borðaðstöðu og Bora spanhelluborði með gufugleypi. Horngluggi til vesturs og gluggar til norðurs, innfelld lýsing og kastarar í lofti. Veggir eru með steinefnasparsli.
Borðstofan: Var stækkuð nýlega út frá eldhúsi, með stórri rennihurð á móti kvöldsólinni, á Terrazzo slípaðan pall, undir borðstofunni er “tæknirými” þar sem hentugt upphitað geymslupláss er.
Þvottahús: Í nokkuð stóru þvottahúsi eru allar tengingar vegna gólf og húshita og gert ráð fyrir innréttingu með vaski. Lagnir eru fyrir þvottavél og þurrkara sem eru í núverandi innréttingu.
Stofa: Gengið er niður í stofu um nokkrar Terrazzo slípaðar steintröppur. Stofan er stór með mikilli lofthæð (5-7 metra), Terrazzo slípað steypt gólf með fallegum stállistum, miklir gluggar ná upp í loft til vesturs og útengi þaðan út á Terrazzo slípaða verönd. Gamall enskur arinn úr marmara er í stofu og er gólf tekið niður þar um 30 cm, sérgerðar sessur eru umhverfis arinn, innfelld lýsing í loftum (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu).

Gengið beint upp tröppur og stiga frá holi, á millipalli er aðgengi í endarými þar sem gengið er um svalir tengdar stofu hússins. Á millipalli er unnið að stækkun og breytingu varðandi glugga til austurs við stiga. Á efri hæð er mikil lofthæð með innfelldum ljósum, í gólfi er hiti, gólfin eru flotuð og glæruð.

Efri hæð:
Svefnherbergi: Í svefnherbergi er staðsteypt rúm með sérhönnuðum höfðagafli. Í hönnun er tekið tillit til staðsetningar og sólargangs. Þar er einnig útgengi út á stórar suðvestursvalir með glæsilegu útsýni yfir Varmá, Álafosskvosina og í vesturátt að sólarlagi. Nýlegir gluggar og svalahurð og svalir með pallaklæðningu.
Baðherbergi: Steinefnasparsl á veggjum, mjög stór og góð sturta, mikil lofthæð með innfelldri lýsingu og góð ofanbirta um þakglugga, upphengt salerni og lagnir fyrir frístandandi baðkar. Upphengd innrétting með náttúrulegum steinvaski.

Stúdíóíbúð: 
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og endurnýjuð á einstaklega glæsilegan hátt með fjölþættum og dimmanlegum ljósum. Komið er inn í anddyri/gang með sérsmíðuðum skáp sem inniheldur fatahengi og búr/tækjaskáp er snýr að ganginum og skilur að svefnrými þar sem í skápnum er fatageymsla og skúffur. Í baðherbergi er sturta, upphengt salerni, skáparými sem meðal annars innheldur þvottavél og þurrkara, hurð á baði er sérsmíðuð og sturtuklefi sérhannaður og stór náttúrulegur steinvaskur. Í alrými er eldhúsinnrétting frá Häcker með Liebherr ísskáp og frysti með klakavél, tvöfaldur Samsung bakaraofn, Samsung grill og örbylgjuofn, uppþvottavél og tvöfaldur vínkælir. Í eldunareyju er Bora spanhelluborð með gufugleypi og mataraðstöðu. Í svefnrými er tvíbreytt rúm, útsýni er til norðurs og vesturs á móti kvöldsólinni, en utan við norðurhlið er gert ráð fyrir heitum potti og slökunaraðstöðu til að njóta himins og norðurljósa.
Bílskúrinn: Er rúmgóður, skráður 42,2 m2, með rafmagni, hita og rennandi vatni. Ný bílskúrshurð.
Stór eignarlóð, 1.706,7 fermetrar, búið er að teikna drög að breytingum að lóð og er ákveðnum framkvæmdum lokið, meðal annars er búið að steypa og Terrazzo slípa plön og tröppur með lýsingu. Einnig er búið að gera einstakan gosbrunn með stuðlabergi og leggja lagnir fyrir vatni og rafmagni í garðinn.
Niðurlag: Hér um að ræða eign í algjörum sérflokki, sannkallað listaverk. Sjón er sögu ríkari. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/05/201777.950.000 kr.77.000.000 kr.339.6 m2226.737 kr.
11/01/200746.295.000 kr.60.122.000 kr.339.6 m2177.037 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1988
42.2 m2
Fasteignanúmer
2083168
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
20.850.000 kr.
Byggt 1988
42.2 m2
Fasteignanúmer
2083168
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
27.400.000 kr.

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stuðlaberg 16
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Stuðlaberg 16
Stuðlaberg 16
221 Hafnarfjörður
205.7 m2
Einbýlishús
615
753 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 13
3D Sýn
Opið hús:07. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbrún 13
Hraunbrún 13
220 Hafnarfjörður
220.2 m2
Einbýlishús
826
703 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Kálfhólar 13
Opið hús:11. apríl kl 14:00-14:30
Skoða eignina Kálfhólar 13
Kálfhólar 13
800 Selfoss
184.6 m2
Einbýlishús
625
568 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Bogabraut 3
Bílskúr
Skoða eignina Bogabraut 3
Bogabraut 3
245 Sandgerði
243.8 m2
Einbýlishús
524
484 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin