Fasteignaleitin
Skráð 28. júlí 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 1

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
106.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
130.900.000 kr.
Fermetraverð
1.225.655 kr./m2
Fasteignamat
41.150.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532720
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Íbúð 501 - Verð 130.9M

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 1- Íbúð 501. Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.

Sölusíða eignarinnar

Virðuleg og einstaklega vönduð 3ja herbergja rúmgóð þakbúð á 5. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Íbúðin er lýst á tvo vegu. Birt stærð er 106,8 fm þar af 5,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á tvennar svalir. 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými, eldhús og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir og norðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. Svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, leirljósum gólfflísum og vaski. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0003. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 8
Bílastæði
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Smyrilshlíð 8
Smyrilshlíð 8
102 Reykjavík
119 m2
Fjölbýlishús
514
991 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 4
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Fálkahlíð 4
Fálkahlíð 4
102 Reykjavík
143.7 m2
Fjölbýlishús
322
904 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 5
Skoða eignina Valshlíð 5
Valshlíð 5
102 Reykjavík
121.2 m2
Fjölbýlishús
413
1105 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 5
Skoða eignina Valshlíð 5
Valshlíð 5
102 Reykjavík
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
1021 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin