Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir Í einkasölu: Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð að Mánatúni 4 í Reykjavík. Eigninni fylgir stæði í lokuðum bílakjallara með rafhleðslustöð. Einstaklega eftirsótt, rólegt og friðsælt hverfi.
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi geymslu og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla í kjallara, hjóla- og vagnageymsla og hlutdeild í sameiginlegri geymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 127,40 fermetrar, þar af er geymslan 8,10 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Merbau Parket á gólfi og fataskápur. Lítil geymsla.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, flísar milli efri og neðri skápa. Eyja með skúffum og góðu vinnuplássi. Tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Bjart og gott rými með glugga í 2-3 áttir. Stofa og borðstofa í samliggjandi rými. Merbau Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á góðar yfirbyggðar svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, vegghengt klósett og ný baðinnrétting við vask með efri skáp.
Þvottahús: Flísar á gólfi, skápar og borðplata með skolvask og ágætis vinnuplássi.
Geymsla í íbúð: Flísalögð með hillum og snögum fyrir útiföt.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eign sem er þess virði að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.