Fasteignaleitin
Skráð 18. sept. 2026

Eyjólfsstaðaskógur 6

SumarhúsAusturland/Egilsstaðir-701
56.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
884.752 kr./m2
Fasteignamat
27.250.000 kr.
Brunabótamat
23.250.000 kr.
Byggt 1989
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2175002
Landnúmer
157475
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt/þakrennur þarfnast viðhalds
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd og svalir
Lóð
0
Upphitun
Rafmagnskynding - ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Athuga þarf ástand á þakrennum.
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EYJÓLFSSTAÐASKÓGUR 6, 701 Egilsstaðir.
Sumarhús/
„heilsárshús" á vinsælum stað í Eyjólfsstaðaskógi, gróin lóð, eign sem vert er að skoða.  Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er timburhús á tveimur hæðum, byggt árið 1989. Húsið er skráð sumarbústaður 56.4 m²  að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Skipulag: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi og baðherbergi, svefnloft með tveimur herbergjum og geymsla undir súð.  

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: 
Forstofa, flísar á gólfi, fatahengi, þaðan er innangengt í önnur rými.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, frá alrými er útgengt út á timburverönd til suðurs með skjólveggjum.
Eldhús, innrétting með neðri og efri skápum, eldavél, gluggi. Ekki er gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Ísskápur er staðsettur undir stiga og þar við hliðinna á er lítil geymsla.
Tvö herbergi, annað þeirra er með sérsmíðaðri hákoju, pláss fyrir tvíbreitt rúm í hinu herberginu
Baðherbergi, dúkalagt í hólf og gólf, sérsmíðaður sturtubotn úr ryðfríu stáli, salerni, vaskinnrétting og speglaskápur, panilklætt loft

Gólfefni: Viðar gólfborð á gólfum á jarðhæð, nema í forstofu þar eru flísar, dúkur er á baðherbergi.
Þéttull er í öllum milliveggjum og innihurðum hússins, sem stuðlar að bættri hljóðeinangrun milli rýma. 
Timburstigi liggur upp á loft, þar eru tvö aflokuð herbergi í hvorum stafni. Pláss er fyrir 2-3 rúm í hvoru herbergi.
Útgengt er út á svalir til suðurs. Timburparketfjalir/ „verkamannaparket" á gólfi. 
Geymsla undir súð, þar er hitakútur hússins og hillur.
Húsið er kynnt með rafmagnsofnum. 

Eyjólfsstaðarskógur 6. Húsið er klætt með timburborðum, timburgluggar og hurðar, járn á þaki.  
Timburverönd liggur meðfram þremur hliðum hússins. Möl er í bílaplani, gróður hefur umlukið bílaplanið. 
Geymsluskúr u.þ.b. 7-9 m² að stærð er á lóðinni (óskráður, kaldur), hvorki vatn né rafmagn er í skúrnum.  Rotþró er við húsið.
Lóðin er skógi vaxin, villtur gróður og tré í bland við trjá- og runnagróður sem veitir gott skjól. Gott aðgengi er að eigninni yfir vetrartímann. 

Lóðin stendur í skipulögðu sumarbústaðalandi, stærð lóðar er 3.650,0 m², leigulóð í eigu Skógræktarfélags Austurlands.

Skráning eignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5002. Eyjólfsstaðarskógur 6, Múlaþing.

Stærð: Sumarbústaður 56.4 m². 
Brunabótamat: 23.250.000 kr.
Fasteignamat: 27.250.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 29.600.000 kr. 
Byggingarár: 1989.
Byggingarefni: Timbur
Eignarhald: 01.2 - Séreign 
01.0101- Séreign. Rými 01.0101 sumarbústaður 56,4 Brúttó m².
Landeignanúmer: L157454. Notkun Sumbarbústaðaland. Stærð 3650,0 m².

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byr fasteignasala
www.byrfasteign.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Selmerkurvegur 16
Selmerkurvegur 16
271 Mosfellsbær
66 m2
Sumarhús
312
1136 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Hólmasund 3
Skoða eignina Hólmasund 3
Hólmasund 3
805 Selfoss
58,7 m2
Sumarhús
413
680 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hólkot 13
Skoða eignina Hólkot 13
Hólkot 13
626 Ólafsfjörður
56,8 m2
Sumarhús
312
440 þ.kr./m2
25.000.000 kr.
Skoða eignina Birkiskógar 6
Heitur pottur
d408efa5-928c-4af3-8f01-e444727b9704.jpg
Skoða eignina Birkiskógar 6
Birkiskógar 6
311 Borgarnes
54 m2
Sumarhús
413
554 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin