DOMUSNOVA OG VÍÐIR ARNAR KYNNA BJARTA ÞRIGGJA HERBERGJA 83,0 FM ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Í FJÖLBÝLI MEÐ YFIRBYGGÐUM SVÖLUM. Nýlokið er við að mála alla íbúðina. Húsið er álkætt að utan og skipt hefur verið um glugga í eldhúsi og svefnherbergjum fyrir um 10 árum síðan. Þakið var endurnýjað árið 2023-2024.
Afhending við kaupsamning.Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi. Fataskápur.
Eldhús: Flísar á gólfi. Rúmgóð innrétting.
Stofa: Flísar á gólfi. Útgengt á svalir með svalalokun.
Herbergi: Parket á gólfi og skápur.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóð innrétting. Sturta.
Þvottahús: Er í sameign með sameiginlegri þvottavél. Góð þurrkaðastaða.
Geymsla: Staðsett í sameign, 5.9 fm.
Svalir: Flísalagðar svalir með svalalokun.
Bílastæði: Bílastæði merkt eigninni er við inngang hússins. Það kemur þó ekki fram í eignaskiptasmningi.
ATH Forsíðumynd af stofu þar sem eru húsgögn á mynd er gerð af gervigreind og þannig ætluð til að gefa hugmynd um skipulag. Iðufell 4 er á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu. Leiknissvæðið með knattspyrnu-, íþrótta- og tómstundaaðstöðu er í aðeins örfárra mínútna göngufjarlægð og sömuleiðis eru verslanir, matvöruverslun, apótek, heilsugæsla og önnur dagleg þjónusta í Mjódd og nágrenni. Þá eru góðar almenningssamgöngur og leik- og grunnskólar í stuttu göngufæri.Nánari upplýsingar veitir:Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.854 2226 / vidir@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup)og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.