Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölum Gyðugötu 3, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 3 herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr að Gyðugötu 3. Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð eignar er 129,6 fm og þar af er íbúðarhluti 102,3 og bílskúr 27,3 fm. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með hvítu bárujárni og með bambusvið í innfellingum. Húsið er hluti af Gyðugötu 1- 5 sem eru þrjú raðhús sem staðsett eru í Vesturbyggð sem er glænýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar.
EIGNIN AFHENDIST Á BYGGINGARSTIGI 4 - FULLGERÐ BYGGING
VIÐ KAUPSAMNING
VERÐ KR. 74.800.000 MILLJÓNIR
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXSkipulag eignarinnar: Anddyri, stofa / borðstofa og eldhús í opnu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús (geymsluloft) og bílskúr
Nánari lýsing:Anddyri: Komið er inn í anddyri með fallegum viðarlituðum fataskápum, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er rúmgóð stofa / borðstofa, gólfsíðir gluggar sem gefa mikla birtu, útgengi út um rennihurð út á baklóð sem snýr í suður, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými er eldhús með brúnni Ikea innréttingu og stórri eyju með skúffum, innfelld ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn og örbylgjuofn, spanhellurborð á eyjunni, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með viðarlituðum fataskápum, gólfsíður gluggi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Inn af forstofu, með viðarlituðum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með stórri hvítri Ikea innréttingu með svartri borðplötu, hvítur veggskápur, tvöfaldur speglaskápur með ljósi, walk in sturta, upphengt salerni, stór handklæðaofn, gönguhurð út á baklóð, flísar á gólfi og á veggjum eru fallegar Fibo plötur.
Þvottahús: Með brúnni Ikea innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur, lúga upp á geymsluloft, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr: Stærð 27,3 fm., málmaksturshurð, innangengt úr þvottahúsi, ómálað gólf sem skilast í því ástandi sem það er.
Húsið: Gólfhiti er í húsinu og stafrænar hitastýringar eru í öllum rýmum. Útiljósi er á framhlið og á suðurhlið eru komin kubbaljós. Innfelld lýsing í loftum í flestum rýmum.
Lóð: Lóðin verður grófjöfnuð, 4 ruslatunnuskýli verða komin.
Gólfefni og innihurðir: Parket er frá Birgisson og flísar frá Ebson. Hvítar yfirfelldar innihurðir með felliþröskuld eru frá Birgisson.
Innréttingar og tæki: Innréttingar og tæki eru frá Ikea.
Almennt:Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald.
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
Byggingaraðili: Hrímgrund ehf.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir eins og hálfs árs til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.