Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, og Hús fasteignasala. kynna í einkasölu eignina Austurvegur 39, 800 Selfoss.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð miðsvæðis á Selfossi fyrir 50ára og eldri byggð árið 2018.
Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi. Íbúðin er 91,3 fm ásamt geymslu sem er 10,2fm, samtals 101,5fm.
**Bókið skoðun**
Að innan skiptist eignin í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergin eru tvö, fataskápar í þeim báðum og harðparket á gólfi.
Stofa og eldhús er í opnu alrými. Eldhús er með vandaðri dökkri innréttingu og hvítum efri skápum. Stofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfum og útgengt út á pall.
Baðherbergi er flísalagt, góð innrétting, spegill með lýsingu, upphengt wc, opin sturta og handklæðaofn. Inn af baðherbergi er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Gangur er með harðparketi á gólfi.
Geymsla er í kjallara.
Innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi frá HTH.
Tæki í eldhúsi frá AEG.
Húsið:
Húsið er staðsteypt og stendur vestast á lóðinni Austurvegi 39-41. Miðsvæðis í bænum og stutt í alla helstu þjónustu. Húsið er einangrað að utan og veggir klæddir sléttu og báruðu áli í bland og viðarklæðning við innganga og á svölum. Gluggar eru ál/tré.
*Búið er í eigninni*
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.