Fasteignaleitin
Opið hús:01. nóv. kl 16:30-17:00
Skráð 16. okt. 2026

Rauðalækur 35

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
133.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
106.500.000 kr.
Fermetraverð
798.950 kr./m2
Brunabótamat
62.150.000 kr.
Byggt 1957
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2016236
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir: Rúmgóða og sjarmerandi efstu hæð í fallegu húsi við Rauðalæk. Eignin er skráð 133,3 fm og skiptist í tvær stofur, en önnur þeirra gæti nýst sem fjórða svefnherbergið, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og gestasnyrtingu. Gott útsýni, tvennar svalir og húsið í góðu viðhaldi, en meðal annars er búið að endurnýja skólplagnir, dren og flesta glugga.

Staðsetningin er eftirsótt í vinsælu fjölskylduhverfi.


Nánari lýsing. Sameiginlegur inngangur með einni annarri íbúð. Gengið er upp á hæðina, þar sem er stigapallur og útgengi út á litlar svalir sem snúa til suðausturs. Komið er inn í rúmgott hol sem leiðir inn í aðrar vistarverur hæðarinnar. Rúmgóð og björt stofa með gluggum í tvær áttir. Við hlið stofunnar er sjónvarpsstofa, en opið er á milli rýmanna. Lítið mál er að loka á milli þeirra og nýta sjónvarpsstofuna sem fjórða svefnherbergið. Rúmgott svefnherbergi er hinum megin við stofuna. Gestasnyrtingin er með aðgengi úr holi. Hún er að mestu flísalögð og þar er upphengt salerni, innrétting með vaski og opnanlegur gluggi. Eldhúsið er aðgengilegt frá holi. Þar er ljós L-laga viðarinnrétting með bakaraofni í vinnuhæð og góðu borðplássi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur og stórir gluggar setja svip sinn á rýmið. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús með veglegum innréttingum. Þar er hægt að hafa þvottavél og þurrkara innfellda í innréttingu og gott borðpláss til hliðar. Inn af þvottahúsinu eru svalir sem snúa til norðurs, með góðu plássi fyrir grill og fleira. Geymsluris er aðgengilegt frá þvottahúsinu og nýtist vel fyrir íbúðina. Á herbergjagangi inn af holi eru tvö góð svefnherbergi. Á ganginum eru fataskápar og innst er baðherbergið. Baðherbergið er að mestu flísalagt og þar er baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með vaski og salerni. Gólfefni hæðarinnar eru parket á öllum gólfum nema í baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi, þar sem eru flísar. Í kjallara er geymsla íbúðarinnar, skráð 1,9 fm, en hún er mun stærri að gólffleti þar sem hún liggur undir stiga niður í kjallarann.

Helstu endurbætur á eigninni undanfarin ár: Skipt var um þak árið 2009, skipt var um glugga í íbúðinni árið 2019 og húsið múrað og málað á sama tíma, frárennsli og dren endurnýjuð árið 2024.


Hægt er að nálgast upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingu hjá fasteignasölunni.


Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri er í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal. Stutt er í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð & Co., Fiskbúðina, Ísbúðina og Laugardalslaugina.


Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/06/201125.650.000 kr.27.000.000 kr.133.3 m2202.550 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sogavegur 73
Bílastæði
Skoða eignina Sogavegur 73
Sogavegur 73
108 Reykjavík
115,8 m2
Fjölbýlishús
312
811 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Skógargerði 2
Skoða eignina Skógargerði 2
Skógargerði 2
108 Reykjavík
112 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
847 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Stigahlíð 48
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Stigahlíð 48
Stigahlíð 48
105 Reykjavík
194,6 m2
Fjölbýlishús
615
770 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 8
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Skólatröð 8
Skólatröð 8
200 Kópavogur
117,4 m2
Fjölbýlishús
422
1277 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin