Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Mjög stóra þriggja til fjögurra herbergjar íbúð í litlu fjölbýli með upphituðum sólskála og bílskúr í Grafarvogi.
* Birt stærð eignar er 120,4 fm með geymslu
* Gengið upp eina hæð frá andyri, íbúð 201
* Tvö svefnherbergi
* Þvottahús innan íbúðar
* Stórt og bjart alrými
* Sólskáli og svalir
* Bílskúr 24,4 fm
Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Eldhúsið er á gagnstæðum veggjum, efri og neðri skápar, pláss fyrir einfaldan ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Nýlegt helluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Borðstofa og stofa mjög rúmgóð, gengið út í sólskála og úr honum á opnar svalir. Flísar eru á sólskála, hægt að opna hann upp og tengdur ofn til upphitunar sem gerir skálann eins og auka setustofu allt árið um kring. Alrýmið er mjög bjart, rúmgott og parket á gólfum. Þvottahús er innan íbúðar með nýrri innréttingu, pláss fyrir þvottvél og þurrkara í vinnuhæð, flísar á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og parekti á gólfi. Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, stór innrétting með vaski og spegli, salerni, baðkar og stakstæð sturta. Mjög rúmgóð geymsla er á jarðhæð, aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Bílskúrinn er lengst til vinstri á húsinu, horft framan á húsið, með bílskúrshurð og lítilli gönguhurð. Sér bílastæði fylgir íbúðinni fyrir framan bílskúrinn.
Falleg eign í grónu hverfi þar sem leikskóli og skóli er í bakgarðinum með alla helstu þjónustu í hverfinu.
Nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.