Fasteignaleitin
Skráð 24. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
546 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
5 Baðherb.
Verð
390.700.000 kr.
Fermetraverð
715.568 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
100230726
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar verandir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINSTAKT LÚXUSEINBÝLISHÚS Á EINNI BESTU LÓÐINNI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*
*546 FM EINBÝLISHÚS Á 2.189 FM EINKALÓÐ – 5 SVEFNHERBERGI – UPPHITUÐ EINKASUNDLAUG – TVÖFALDUR BÍLSKÚR – STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI*
Hér er um að ræða eitt glæsilegasta og vandaðasta einbýlishús sem nú er í boði á hinum margverðlaunaða Las Colinas golfvelli. 
Húsið stendur á einstakri 2.189 fm útsýnislóð á frábærum stað í Mimosa-hverfinu, aðeins örstutt frá klúbbhúsinu, golfvellinum, veitingastöðum og allri þjónustu svæðisins.
Frá húsinu er stórkostlegt útsýni yfir fallega náttúru  og allt út að Miðjarðarhafinu. Hér sameinast einstakur arkitektúr, fyrsta flokks efnisval og einstök staðsetning.
Húsið er 546 fm og skiptist á þrjár hæðir þar sem rúmgóð rými, glæsileg hönnun og mikil lofthæð skapa einstaka lúxusupplifun.
Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.
+354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. +34 615 112 869. berta@spanareignir.is.

NÁNARI LÝSING:

Þegar komið er inn á aðalhæð hússins blasir við einstaklega glæsilegt opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda hjarta hússins.
Stórir gluggar frá gólfi til lofts tengja innra og ytra rými á einstakan hátt og opna út á glæsilegar verandir sem ná hringinn í kringum húsið, þar sem hægt er að njóta sólar og útsýnis á öllum tímum dags.
Eldhúsið er sérsmíðað með vönduðum tækjum og við hlið þess er fullbúið aukaeldhús (prep kitchen) með aukaísskáp, sér frystiskáp, vínkæli og góðu vinnurými fyrir stærri veislur og dagleg not.
Matarlyfta nær upp á efri hæðina, sem auðveldar allan flutning á mat og drykk milli hæða og undirstrikar þann lúxus sem einkennir eignina.
Á aðalhæðinni eru ennfremur  2 glæsileg svefnherbergi, bæði með sér baðherbergjum og útgengi út á verönd. Auk þess gestasnyrting.
Á efri hæð hússins er sér glæsileg hjónasvíta með glæsilegu baðherbergi, nuddsturtu og baðkeri. Einnig er þar vel hannað fataherbergi og notalegur setkrókur, þar sem dásamlegt er að njóta morgunkaffisins sem mataralyftan af neðri hæð getur fært manni. Útgengi út á stórar svalir með frábæru útsýni.
Á neðri hæð hússins eru:
tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með sér baðherbergjum og útgengi út í garðinn,
sófarými, þar sem hægt er að tylla sér,
rúmgott skrifstofuherbergi,
þvottahús og geymsla,
glæsilegt fjölnota tómstundarými sem auðveldlega má nýta sem:
einkabíósal,
líkamsrækt,
vínkjallara,
leikherbergi,
eða annað eftir óskum eigenda.
innangengt er í rúmgóðan tvöfaldan bílskúr með góðu aðgengi.

VERÐ:
€2.695.000
(ca. ISK 390.700.000 miðað við gengi €1 = ISK 145)
Aðeins eitt hús í boði. Til afhendingar við kaupsamning.

ALGJÖR LÚXUS
Ekkert hefur verið til sparað við hönnun eða frágang.
Húsið er meðal annars búið:
Gólfhita um allt húsið
Innbyggðri loftkælingu/hitun
Sólarorkukerfi
Snjallstýringu
Vönduðum eldhústækjum
Fallegum baðherbergjum
Sérsmíðuðum innréttingum
Rafmagnshliði
Upphitaðri einkasundlaug
Glæsilegum garði
Einka púttvelli
BBQ aðstöðu
Fallegri útilýsingu
Tvöföldum bílskúr
Vönduð húsgögn fylgja með í kaupunum og húsið er tilbúið til afhendingar við kaupsamning og hægt að flytja strax inn.

SVÆÐIÐ
Las Colinas golfsvæðið hefur síðastliðin ár verið valið eitt besta golfsvæði Evrópu og einnig eitt besta golfsvæði Spánar.
Íbúar njóta meðal annars:
margverðlaunaðs 18 holu golfvallar,
glæsilegs klúbbhúss,
úrvals veitingastaða,
nýs Spa og líkamsræktarstöðvar,
tennis- og padelvalla,
fallegra gönguleiða,
og einkastrandklúbbs á Campoamor-ströndinni.
Aðeins um 10 mínútna akstur er niður á ströndina og í hina vinsælu verslunarmiðstöð La Zenia Boulevard.

Í næsta nágrenni eru einnig fjölmargir þekktir golfvellir, þar á meðal:
Campoamor
Las Ramblas
Villamartín
La Finca
Lo Romero
Vistabella

Spánareignir mæla sérstaklega með þessari eign
Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja eignast eina glæsilegustu eignina á Costa Blanca.
Samspil arkitektúrs, staðsetningar, útsýnis, efnisvals og þjónustu gerir þessa eign að algjörum sérflokki.

SKOÐUNARFERÐIR
Við aðstoðum kaupendur við skipulagningu skoðunarferða og tökum þátt í ferðakostnaði ef af kaupum verður.
Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á hagstæðum kjörum.

Við höfum sérhæft okkur í sölu fasteigna á Spáni frá árinu 2001, sem tryggir viðskiptavinum okkar þekkingu, reynslu og öryggi í gegnum allt kaupferlið.

Nánari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni má finna á www.spanareignir.is.

Kostnaður við kaupin
11% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 2-3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13-14%.

Eiginleikar: Lúxuseign, Upphituð Einkasundlaug, stór einkalóð,  Stór Verönd,  Húsgögn fylgja, Gólfhiti, Loftkæling, Púttvöllur, BBQ, Útsýni,

Svæði: Costa Blanca, Las Colinas, Orihuela Costa,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100230726
Fasteignanúmer
100230726

Myndir (100)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógar - Skólavegur 3
Skógar - Skólavegur 3
861 Hvolsvöllur
529 m2
Einbýlishús
4311
Fasteignamat 100.900.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Örvasalir 5
Bílskúr
Skoða eignina Örvasalir 5
Örvasalir 5
201 Kópavogur
278.5 m2
Einbýlishús
625
896 þ.kr./m2
249.500.000 kr.
Skoða eignina Boðavík 28
Bílskúr
Skoða eignina Boðavík 28
Boðavík 28
800 Selfoss
182.6 m2
Einbýlishús
413
624 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduhlíð 8
Á einni hæð
Hleðslustöð
0S6A1755.jpg
Skoða eignina Hulduhlíð 8
Hulduhlíð 8
270 Mosfellsbær
158.8 m2
Raðhús
413
913 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin