Íbúð 402 - Verð 110,9 M
Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 1 - Íbúð 402. Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.
Vönduð og stórglæsileg tvílýst 2ja herbergja rúmgóð horníbúð á 4. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Birt stærð er 83,1 fm þar af 5,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir og svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með einstaklega vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, Witt og Temptech í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.
Nánari lýsing: Í opnu anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á rúmlega 20 fm þaksvalir í suður með tengi fyrir heitan pott og að auki austusvalir inn í inngarð. Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vínkælir. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með mattri áferð og speglaskápur. Blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Afmörkuð aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0011. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
102 | 81.7 | 100,9 | ||
102 | 84 | 115,9 | ||
102 | 83.9 | 102,9 | ||
102 | 85.5 | 110,9 | ||
102 | 84 | 109,9 |