Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Austurbyggð 16 - Falleg og mikið endurnýjuð 5 herbergja efri hæð í tvíbýli með stakstæðum bílskúr í Austurbyggð - samtals 180,3 m² þar af telur bílskúr 37,3 m²Eignin skiptist í forstofu, stiga og stigapall, stofu, borðstofu, eldhús, búr, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu/herbergi í kjallara, sameignarrými og stakstæðan bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi og þaðan er steyptur stigi upp á stigapall þar sem teppi hefur verið rifið af. Á stigapalli eru skápar sem fylgja með við sölu.
Stofan og borðstofan eru björt og rúmgóð rými með harðparketi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Í dag er hluti stofu afmarkaður með skilrúmum og nýttur sem herbergi.
Eldhúsið er flísalagt með ljósri snyrtilegri innréttingu og flísum á milli skápa. Hægt er að loka eldhúsinu með innfelldri rennihurð. Gólfhiti er í eldhúsi.
Þvottahús er innaf eldhúsi og þar er jafnframt kalt búr. Gólfhiti er í þvottahúsi. Úr þvottahúsi er gengið niður í sameign hússins.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll staðsett á svefnherbergisgangi. Harðparket er á gólfum herbergja og í einu þeirra eru fataskápar. Laus fataskápur á gangi fylgir með við sölu.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2019 og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er rúmgóð sturta með tveimur sturtutækjum og hengi, ljós innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Í kjallara eru sameiginleg lagnarými og sérgeymsla sem nýtt er sem svefnherbergi í dag.
Sameiginlegur bakdyrainngangur er til norðurs af jarðhæðinni ásamt öðrum sameiginlegum inngangi úr kjallara.
Bílskúrinn er stakstæður og stendur á norðvesturhorni lóðarinnar. Hann er rúmgóður, um 37,3 m² að stærð, með rafdrifinni innkeyrsluhurð og gönguhurð. Gólf eru lökkuð og þar er niðurfall. Rafmagn er í skúrnum en hvorki hiti né vatn.
Framan við bílskúrinn er stórt steypt bílaplan sem tilheyrir íbúðinni. Lóðin er að öðru leyti sameiginleg með neðri hæð.
Annað:- Lagður var PVC dúkur á Bílskúrs þak 2025 og gert var við þakkantinn
- Baðherbergi endurnýjað árið 2019
- Gólfefni endurnýjuð að stærstum hluta árið 2020
- Útihurð við aðalinngang endurnýjuð árið 2021
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur
- Steypt plata er yfir íbúðinni með sameiginlegu geymsluplássi fyrir efri og neðri hæð
- Lúga er upp á loft frá svölum
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.