Domusnova og Ingunn Björg kynna fallega og bjarta, töluvert endurnýjuð 7 herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi. Skv. HMS er eignin skráð 225,9 fm2, þar af er bílskúr 36 fm2. Húsið er staðsett innarlega í botnlanga á útsýnislóð við Valhúsahæðina á Seltjarnarnesi. Um er að ræða steinsteypt þríbýlishús sem stendur á gróinni eignarlóð með einstöku óhindruðu útsýni til sjávar og góðri aðkomu fyrir framan hús. Lokað hefur verið á milli hæða og hefur verið útbúin aukaíbúð með sérinngangi á neðri hæð. Skv. HMS er eignin skráð á eftirfarandi hátt: Íbúð á efri hæð er skráð 120,9 fm2, íbúð á neðri hæð er 69 fm2. Bílskúr er mjög rúmgóður með gluggum á tveimur hliðum, innkeyrsluhurð, ásamt gönguhurð við hlið hennar og annarri hurð með útgengi út í garð. Húsið er á mjög eftirsóttum stað í friðsælli götu við Kirkjubraut á Seltjarnarnesi. Örstutt er í verslanir og þjónustu á Eiðistorgi, í næsta nágrenni er leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, sundlaug, íþróttasvæði Gróttu og fjölbreytt útivistarsvæði.
Einstök eign á frábærum stað á Seltjarnarnesi með mikla tekjumöguleika.
Nánari lýsing eignar:
Efri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Falleg ljós innrétting með granítborðplötu, niðurfellt helluborð, háfur, ofn í vinnuhæð,búrskápur, tvöfaldur ísskápur. Góður borðkrókur með fallegu útsýni. Flísar á gófli.
Stofur: Þrjár bjartar stórar og samliggjandi stofur þ.m.t. borðstofa, gluggar á tvo vegu, útgengt á suðvestur svalir. Stórfenglegt útsýni er úr stofu til sjávar. Falleg tekk rennihurð er á milli einnar stofunnar og arinstofu. Glæsilegur stílhreinn arinn. Hægt er að ganga inn í arinstofu frá forstofu og væri því auðvelt að útbúa svefnherbergi þar. Eikarparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, gott skápapláss, eikarparket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting á vegg með vaski ofan á, speglaskápur fyrir ofan. Fín sturta með glerskilrúmi, háskápur með hillum á vegg, gólfhiti.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi.
Neðri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart með dúk á gólfi.
Eldhús/ stofa: Eldhús er í skoti inn af stofu. Opin neðri innrétting með skúffum, frístandi eldavél, rúmgóð stofa er í sama rými, útgengt út á lítinn timburpall og í garð.
Baðherbergi: Mjög rúmgott , gluggi með opnanlegu fagi. Nýlegur sturtuklefi, flísar á gólfi og veggjum.
BílskúrMjög rúmgóður 36 fm2 bílskúr með innkeyrsluhurð ásamt hurð við hlið hennar, einnig er hurð úr bílskúr með útgengi út í garð. Gluggar á þremur hliðum með opnanlegum fögum. Rafdrfin hurðaopnun.
Ath! Eignin er ekki skv. upprunalega skipulagi og teikningum. Opið var á milli hæða þar sem nú hefur verið lokað á milli og útbúin aukaíbúð á neðri hæð.
Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni í töluverðan tíma og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirlitinu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga.Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykill er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.