Fasteignaleitin
Skráð 28. ágúst 2026

Vogatunga 39

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
236.7 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
153.900.000 kr.
Fermetraverð
650.190 kr./m2
Brunabótamat
140.500.000 kr.
Miklaborg
http://www.miklaborg.is
Byggt 2019
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2331484
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Miklaborg kynnir: Fallegt 236,7 fm tveggja hæða raðhús við Vogatungu í Mosfellsbæ. Húsið skiptist í forstofu, bílskúr, tvö baðherbergi, fjögur svefnherbergi stofu og eldhús. Tveggja herbergja auka íbúð er búið að koma fyrir á jarðhæð sem skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Góð eign fyrir stóra eða stækkandi fjölskyldu.


Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann Axelsson í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Vogatunga 39 er tveggja hæða raðhús byggt úr forsteyptum einingum með tvíhalla þaki. steinað að utan, einangrað að innan.

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, úr forstofu er gengið inn í auka íbúðina, bílskúrinn og aðal íbúð. í Aðal íbúð er Unglingaherbergi á jarðhæð með parketi á gólfi. Baðherbergi með þvottaaðstöðu þar sem eru flísar á gólfi og veggjum. Gangur á neðri hæð er með flísum á gólfi og er nýttur sem skrifstofa með útgengi út í baklóð. Steyptur stigi með teppi á þrepum og góðum glugga til norður sem gefur góða birtu og skemmtilegt útsýni að Esjunni. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými með útgengi út á góðar svalir til suðurs. Eldhús er með fallegri innréttingu þar sem blandað er saman dökkum við og hvítum hurðum, borðplata er gráleitur granítsteinn. Í eldhúsi eru tveir ofnar, innbyggð uppþvottavél, helluborð og pláss fyrir breiðan ísskáp. Hjónaherbergi er rúmgott með walk-in fatarými. Barnaherbergi með fataskáp. Barnaherbergi tvö er með fataskáp, en þetta herbergi var sett upp á kostnað stofunnar og því hægt að stækka stofuna. Baðherbergi á hæðinni er með flísum á gólfi og tveimur veggjum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með vask og speglaskáp. Á efrihæð er parket á gólfum nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Aukin lofthæð er á efrihæð. Í aukaíbúð er svefnherbergi með fataskáp. Stofa og eldhús eru í opnu rými með glugga til suðurs. Eldhús með hvítri innréttingu með innbyggðri lítill uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og plássi fyrir ísskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, horn sturtu með glerskilrúmi, handklæðaofni, plássi fyrir þvottavél og þurrkara og innréttingu með vask, skúffum og speglaskáp.

Bílskúr er flísalagður með kalt og heitt vatn og rafdrifinum hurðaopnara.

Í votrýmum nema í þvottahúsi er gólfhiti en annarsstaðar í húsinu eru ofnar.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/12/201959.200.000 kr.63.500.000 kr.236.7 m2268.272 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata 40
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 40
Úugata 40
270 Mosfellsbær
239,2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Gvendargeisli 12
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Gvendargeisli 12
Gvendargeisli 12
113 Reykjavík
117,9 m2
Fjölbýlishús
413
678 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 503
Bílastæði
Opið hús:28. okt. kl 11:30-12:15
Laugavegur 168 503
105 Reykjavík
112,6 m2
Fjölbýlishús
422
1216 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 (507)
Bílastæði
Opið hús:28. okt. kl 11:30-12:15
Laugavegur 168 (507)
105 Reykjavík
152,9 m2
Fjölbýlishús
423
1405 þ.kr./m2
214.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin