LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3 herbergja 81.4 fm íbúð á 2. hæð í nýju fjölbýli við Borgartún 24. Íbúðin er með sérinngangi úr virkilega skemmtilegum inngarði og er laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu með 9,1 fm svölum sem snúa til suðausturs ásamt 7,3 fm geymslu á jarðhæð. Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og parket á gólfi
Eldhús vönduð innrétting frá Nobilia, eldhústæki frá Simens
Stofa og borðstofa bjart opið rými, parket á gólfi, útgengt á svalir
Hjónaherbergi með fataskáp og parket á gólfi
Barnaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta með upphengdu salerni og handklæðaofni.
Geymsla sem er 7,3 fm að stærð með mikilli lofthæð.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
Túnin eru hið upphaflega úthverfi Reykjavíkurborgar. Margt hefur breyst og eru þau nánast hluti af miðbænum í dag. Í hverfinu er Waldorfskólinn Sóltún en Laugarnesskóli er ekki langt undan og er hverfisskólinn fyrir börnin sem búa á svæðinu. Nálægðin við Borgartúnið gerir það að verkum að margvísleg þjónusta er innan seilingar hvort sem fólk þarf að fara með skyrtur í hreinsun eða kaupa sér innanhúsmálningu. Í Borgartúni er sérstaklega gert ráð fyrir hjólreiðafólki og þaðan er hægt að hjóla í hendingskasti, beygja framhjá Höfða og bruna Sæbrautina. Bríetartúnið er nútímaleg byggð og göngubrú tengir svæðið við Teigahverfið í Laugardal. Það er því auðvelt aðgengi að útivistarsvæðum og Túnin vel tengd við aðra borgarhluta.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.