STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt 224,8 fm einbýlishús á tveimur hæðum með aukinni lofthæð í stofu og miklu óhindruðu útsýni yfir borgina, sundin blá og Snæfellsjökul. Rúmgóður bílskúr og húsið stendur á rúmgóðri lóð, grónum trjám.
Eldhús og Stofa eru á efri hæð hússins ásamt gestasalerni og yfirbyggðum sólskála yfir bílskúr. Á neðri hæð hússins er innangengt í bílskúr, rúmgott hol, 3-4 svefnherbergi, aðalbaðherbergi og þvottahús.
Stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Einnig er stutt í aðra almenna þjónustu eins og Bónus og Domino´s sem eru í verlsunarkjarnanum Hólagarði ásamt annarri verslun, stutt er í Mjóddina með sína þjónustu, strætisvagnar ganga ört um og er stór skiptistöð í Mjóddinni, íþróttafélögin ÍR, Leiknir og Aþena reka sitt starf í hverfinu að ógleymdri náttúruperlunni Elliðarárdalnum með öllum sínum gönguleiðum.
Einbýlishús á efri hæð er 110,5 fm (merkt 01-0201) íbúðarhluti á neðri hæð er 79,7 fm (merkt 01-0102) og bílskúr er 34,6 fm (merkt 01-0101) samtals er eignin 224,8 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með marmaraflísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi og skápum, þar er einnig stigi upp á efri hæð hússins.
Stofa er með parketi á gólfi, gasarinn og úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með miklu útsýni yfir borgina.
Sólskáli á efri hæð er með flísum á gólfi og svölum til austur ásamt nýlegri rennihurð.
Eldhús er með korkflísum á gólfi, eldri viðarinnréttingu með flísum á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er búr þar er dúkur á gólfi og skápar.
Svefnherbergin eru 4 upprunalega en eru nú búið að gera eitt herbergi úr tveimur, parket á gólfum og skápar.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar, sturtuklefi, handklæðaofn, wc, innrétting í kringum vask og gluggi með opnanlegt fag.
Gestasalerni á efri hæð er með flísum á gólfi, upphengt wc, vaskur og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vaskur og hillur og þaðan er líka útgengt út í garð bakatil. Gamall geymsluskúr er við inngang á bakvið hús.
Geymsla er með flísum á gólfi og er inn af bílskúr og er með hillum.
Bílskúr er með flísum á gólfi, heitt og kalt vatn og rafmagn í hurð. Innangengt er úr forstofu í bílskúr.