Rúmgóða og vel skipulagða 111 fm 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð með glugga á þrjá vegu á þessum vinsæla og eftirsótta stað í Lindahverfi í Kópavogi.Eignin skiptist m.a. þannig: Sérinngangur, forstofa með skáp,hol með fataskáp, sjónv.hol, rúmgott eldhús með snyrtilegum innréttingum, góður borðkrókur, björt rúmgóð stofa með útgent út á rúmgóðar svalir til suðurs.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með skáp. Rúmgott hjónaherbergi með skáp. Inn af elhúsi er þvottaherbergi. Gott baðherbergið með baðkari með sturtuaðstöðu , flísar á gólfi og veggjum, gluggi, snyrtileg innrétting.Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.isNánari lýsing: Forstofan er flísalögð með fataskáp
Hol: með fataskáp.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og gott rými með parketi á gólfi og útgengt út á suðursvalir.
Hol hefur parket á gólfi og opið við stofuna, getur nýst sem sjónvarpshol.
Eldhús hefur fallega innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, tengi fyrir tvöfaldan ísskáp og borðkrók. Flísalagt gólf.
Hjónaherbergi er parketlagt og með stórum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö en þar er parket á gólfum og fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt, með góðu skápaplássi og baðkari með sturtuaðstöðu. Góður gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi, þar er skápur bakvið hurðina. .
Svalir eru flísalagðar og sólríkar, suðursvalir.
Í sameign er
sérgeymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.Bílastæði er fyrir framan húsið og er það merkt íbúðinni.
Búið er að samþykkja gluggaskipti á nánast öllum gluggum innan íbúðar og mun seljandi sjá um að greiða þann kostnað sem fellur vegna þessa. Búið er að vinna skýrslur um ytrabyrgði og þak hússins. Fallegt útivistarsvæði er í nágrenninu ásamt góðri íþróttaaðstöðu.
Leikskólarnir Dalur og Núpur ásamt Lindaskóla eru í göngufæri ásamt því að stutt er í alla helstu þjónustu.