Fasteignaleitin
Opið hús:27. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 23. apríl 2026

Blásalir 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
97 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
885.567 kr./m2
Fasteignamat
72.700.000 kr.
Brunabótamat
51.800.000 kr.
Mynd af Sveinn Gíslason
Sveinn Gíslason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2236455
Landnúmer
178378
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Hilmar Arnarson, aðstoðarmaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna:

Bjarta og mikið endurnýjaða, þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með góðum sólpalli sem snýr í suðvestur, í Salahverfinu, nánar tiltekið Blásalir 19, 201 Kópavogur. Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 97.0 fm en þar af er geymsla skráð 7.0 fm.


* Nýjar innihurðar frá Birgisson
* Nýtt parket frá Birgisson
* Ný eldhúsinnrétting ásamt Quartz-stein frá steinprýði

* Eignin er öll nýmáluð og getur verið laus við kaupsamning.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823-3673

Nánari lýsing eignar:
Forstofan komið er inn í flísalagða forstofu um sérinngang. Stór fataskápur með speglahurðum er í forstofu.
Eldhúsið er á hægri hönd þegar gengið er inn í alrými. Dökk eldhúsinnrétting með fallegum brons höldum. Quarts-steinn frá Steinprýði, Carrara White Marble 20 mm á borðum. Undirlímdur vaskur ásamt blöndunartæki. Innbyggð uppþvottavél frá AEG. Ofn í vinnuhæð og helluborð í eldhúseyju frá Samsung. Innbyggður ísskápur fylgir frá Samsung. LED lýsing er undir efri skápum og í eyju. Nýtt parket á gólfum frá Birgisson.
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Stórir gluggar og hurð með útgengi út á suðvestur pall með skjólvegg. 
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og góðum innbyggðum fataskáp. Stór gluggi sem snýr út í gróinn garð. 
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og góðum innbyggðum fataskáp. Stór gluggi sem snýr út í gróinn garð. 
Baðherbergið er flísað í hólf og gólf. Inni á baði er bæði sturta og baðkar í sitthvorum endanum ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Góð vegghengd innrétting með speglaskáp ásamt handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er inni á baði fyrir ofan baðkar sem snýr út í garð. 
Geymsla 7 fm geymsla fylgir íbúðinni og er staðsett við hlið íbúðar. Gengið er inn í hana að utan um sérinngang. Góður gluggi er í geymslunni.

Ath. Eignin er tóm, en notast var við aðstoð gervigreindar á myndum með húsgögnum.

Virkilega smekkleg og björt eign á þessum vinsæla stað í Salahverfinu, í göngufæri við leikskóla, grunnskóla, líkamsrækt og Salalaug ásamt íþróttafélaginu Gerplu.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is sími 823-3673, aðstoðarmaður fasteignasala.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/10/202568.800.000 kr.76.000.000 kr.97 m2783.505 kr.
05/05/202144.750.000 kr.54.900.000 kr.97 m2565.979 kr.
22/01/201424.300.000 kr.28.500.000 kr.97 m2293.814 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Búðavegur 35
Skoða eignina Búðavegur 35
Búðavegur 35
750 Fáskrúðsfjörður
398.7 m2
Fjölbýlishús
4610
Fasteignamat 24.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Kristnibraut 57
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:30. apríl kl 16:30-17:30
Skoða eignina Kristnibraut 57
Kristnibraut 57
113 Reykjavík
112.8 m2
Fjölbýlishús
312
682 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Blönduhlíð 23
Opið hús:26. apríl kl 13:00-13:30
IMG_1029.JPG
Skoða eignina Blönduhlíð 23
Blönduhlíð 23
105 Reykjavík
79.8 m2
Fjölbýlishús
211
783 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Hásteinsvegur 18
Bílskúr
Hásteinsvegur 18
825 Stokkseyri
192 m2
Einbýlishús
514
468 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin